Sunday, December 31, 2017

Slóð á Hjartastein

https://www.youtube.com/watch?v=R9Tcw-_SrcA

Þessi mynd var að mestu leyti tekin á Borgarfirði eystri og einnig hér á Seyðisfirði og víðar !

Thursday, December 28, 2017

Slóð á vídeó frá Húsavík

https://www.youtube.com/watch?v=Jv6ZXxPjfQA

Vetrarbirgðir af kjöti !

Við keyptum í haust vetrarbirgðir af kjöti, heilan sauðaskrokk af Sigga á Dvergasteini og hálft folald af Eindísi skólasystur. Báðir skrokkarnir voru alltof feitir, ég skar full vaskaföt af fitu af þeim og geymi handa krumma sem vetrarfóður. Einnig náði Rúnar í nokkra pakka af fiski í kistuna, svo hún er nánast full, því ég var búin að safta svo mikið í haust og tína mikið af bláberjum til að eiga í frosti, enda borða ég bláberjahræring á hverjum morgni og verður gott af því !




Jólin 2017

Það var fámennt hjá okkur þessi jólin, enda við Rúnar ein heima ásamt Sigga okkar.
Við leyfðum okkur að vera löt og fórum lítið nema í jólakaffi til Binnu og Magga og vorum svo að dunda okkur við púzzl, ýmsar þrautir, lestur og fleira. Auðvitað skype-uðum við líka við Jóhönnu, Bergþór og þeirra fjölskyldur og horfðum smávegis á sjónvarp, þó það sé lítið spennandi....




Rúnar í viðgerðir !

Rúnar lenti í því að hjartað í honum fór að ganga aðeins á hálfu afli og var því sendur suður með sjúkravél og beint í aðgerð, þar sem settur var í hann hjartagangráður. Það tókst vel og allt virtist gróa og virka eins og til stóð. En hann þarf í aðra aðgerð í janúar, til að gera við kviðslit (í 3ja sinn) sem ég vona að gangi jafn vel, svo vetrarfríið okkar í febrúar verði jafn gott og vonir standa til :)

Músaveiðar !

Það hefur verið friður fyrir músum hér s.l. 2 ár, eftir að Rúnar setti vírnet undir alla klæðninguna á húsinu. En s.l. vikur hafa þær fundið aftur leið inn á háaloftið og ein komst í bílskúrinn þegar hurðin fauk þar upp í vondu veðri. En við náðum þeim öllum (13 stk. alls) og Rúnar ók með þær flestar út á Strönd, en þær sem drápust fékk krummi til umráða. Til varnar frekari inngöngu úðaði Rúnar klór kringum allt húsið og síðan hefur engin mús látið sjá sig, nema utan dyra, þar sem nóg virðist af þeim og ég sé þær oft að ná sér í bita af fuglafóðrinu :)  Reyndar náði ég einni utandyra í dag, en það stóð stutt, því sú stutta smaug úr greip minni og hljóp snöggt upp handlegginn á mér og stökk svo uppað skúrveggnum, þar sem hún slapp niður í holu. En ég hefði viljað eiga þennan flótta hennar á myndbandi :)


Jólafuglinn Glói !

Einn Glóbrystingur hefur haldið til hjá okkur í margar vikur og annar hefur haldið til á Múlaveginum hjá Heiðari. Einnig eru hér 3 gráþrestir, nokkrir svartþrestir og skógarþrestir. En mesta fyrirferðin er í dúfunum sem éta næstum allt frá snjótittlingunum sem koma aðeins þegar allt er á kafi í snjó. Máfarnir eru líka farnir að mæta í brauðafgangana og krummi fær sína fitubita dagalega og nágranninn æðarkollan kemur líka flesta daga og vill fá sitt :)




Kafsnjór !

Það hefur snjóað heil ósköp í nokkrar vikur og nú er allt komið á kaf og endalaus snjómokstur og fóðrun fugla tekur líka heilmikinn tíma, enda margir svangir munnar !



slóð á snjómokstur !

https://www.sfk.is/is/umhverfi/snjomokstur

Saturday, December 09, 2017

Síldarvinnslan 60 ára !

Öllu starfsfólki Síldarvinnslunnar var boðið í afmælisveislu til Gdansk í Póllandi. Við vorum þar úti í 3 nætur og nýttum tímann vel. Fórum í skoðunarferðir, bæði á söfn og um gamla bæinn. En gistum á Sheraton hóteli í Sopod, sem er strandbær Gdansk og þar var veislan haldin fyrir 530 manns. Hún var vel skipulögð og glæsileg og mesta undrun mín var að hitta þar Siggu Beggu og Finnboga :)
Ekki má gleyma því að Rúnar minn átti líka 65 ára afmæli þarna ytra, 1. des. og við fórum með Gullvershópnum út að borða það kvöld og þeir Jónas voru kvaddir með virktum eftir áratuga samstarf við marga í hópnum.




Leikskólabörn á ný í heimsókn !

Leikskólabörn hófu svo komu sína á safnið  þegar vetraði og hefur gengið áfallalaust sem betur fer.
Vonandi verður svo áfram, væntanlega fram undir vor ? 



Brúin loksins lagfærð !

Eftir flóðin miklu í sumar, var nánast ófært yfir "brúna" á Dagmálalæknum í nokkra mánuði. Það var ekki fyrr en vetur var genginn í garð sem gröfur og fylgdarlið mættu og útbjuggu nýtt og myndarlegt ræsi undir veginn yfir lækinn. Við notuðum auðvitað efri löngu leiðina (Hlíðarveg-Múlaveg) á meðan.




Uppskeran !

Haustverkin í garðinum voru ekki jafn markviss að þessu sinni og verið hefur undanfarin ár.
Af einhverjum ástæðum var gulrótaruppskeran lítil að þessu sinni, en kartöfluuppskeran góð.
Einnig fengum  við nokkra hvítkálshausa og jarðarber, sólber, rifsber og slatti af hindberjum voru á sínum stað.
Einnig var nóg af Aðal-bláberjum og krækiberjum, sem ég tíndi nóg af og saftaði hálf fulla frystikistu.



Slóð á Druslurnar hennar Bjargar í Lóni

https://www.facebook.com/messages/requests/t/benedikt.h.hermannsson?notif_id=1512830821565823&notif_t=message_request

Sunday, October 08, 2017

Kosningavísur Fjólu Einars 2017

Á þingi sitja yfir sex
sundurleitir flokkar.
Setjið ekki við þá X,
þeir skerða launin okkar.

Lífið er hverfult, 
því lánið það er valt.
Þeir lofa öllu fögru,
en svíkja svo allt.

Aftur á bak og út á hlið,
í allsnægtum sér velta.
Moka mat í eigin kvið,
meðan aðrir svelta.

En komi hendi
og fái þessu breytt,
þeir gætu orðið öreigar
sem ekki eiga neitt.




Saturday, September 23, 2017

Ismus.is - Slóðir á viðtöl við...

Jóa Sveinbjörns;
https://www.ismus.is/i/interview/id-204
og Ingu Hrefnu;
https://www.ismus.is/i/interview/id-205

Thursday, September 21, 2017

Berjaát skógarþrastanna !

Skógarþrestirnir eru búnir að vera í kappflugi/hlaupi við að éta upp öll rifsberin hjá okkur undanfarnar vikur og eru nú komnir í reyniberin sem loksins eru orðin rauð og þroskuð.
Það er gaman að fylgjast með þeim í þessu mikla áti fyrir flugið langa suður á bóginn :)

Wednesday, September 20, 2017

Fallegt sólsetur fyrir norðan !

Þrátt fyrir regnið fyrir norðan, þá fengum við fallegt sólsetur og góðan dag á Húsavík, áður en við fórum aftur austur...




Vinnuferðir norður !

Við erum búin að fara 2 vinnuferðir norður í Bjarmaland í ágúst og september, til að setja upp sólarsellu og inniljós í fyrri ferðinni, en straumbreyti og fleira í þeirri síðari. Við fengum rigningu í bæði skiptin en þó var frekar hlýtt í veðri. En engan silung fengum í matinn, kíllinn var tómur og lítið vatn bæði þar og úti í Hafursstaðavatni...   Gangnafólk var þarna  á ferðinni í seinna skiptið.






Saturday, August 12, 2017

Föt sem framlag !

Í mörg ár hef ég dundað við það á kvöldin að hekla (og prjóna) föt og teppi fyrir RKI barnafataverkefnið, Föt sem framlag. Hópurinn okkar hér á Sf. hefur að mestu leyti sent föt á yngstu börnin (0-1 árs) til Hvíta Rússlands. Ég set reglulega inn myndir á RKI vegginn, en ætla að setja hér sýnishorn, því þetta blogg er fyrst og fremst eins og minningabók sem ég geymi fyrir sjálfa mig :)





Myndir Willard Fiske

https://images.google.is/imgres?imgurl=https%3A%2F%2Ff.hypotheses.org%2Fwp-content%2Fblogs.dir%2F821%2Ffiles%2F2013%2F10%2FTj%25C3%25B6rninca1900FWWHowell.jpg&imgrefurl=http%3A%2F%2Fnordichistoryblog.hypotheses.org%2F1751&docid=PWP32Rzg-DUvbM&tbnid=k6LmcFwK_rPWaM%3A&vet=1&w=1130&h=811&source=sh%2Fx%2Fim#h=811&imgdii=k6LmcFwK_rPWaM:&vet=1&w=1130

Wednesday, August 09, 2017

Gönguferð á slóðir Bjarna-Dísu !

Þegar Rúnar kom í land, þá vildi svo vel til að veðrið var nokkuð gott, meira að segja sól á köflum, svo við ákváðum að fá okkur góðan göngutúr á slóðir Bjarna-Dísu, en Siggi var nýbúinn að fara þarna og var hrifinn af djúpu og fallegu gljúfri með nokkrum fossum á þessum slóðum.
Við urðum ekkert fyrir vonbrigðum og fréttum að til stæði að afhjúpa minnisvarðann sem nýbúið er að setja þarna upp fyrir tilstuðlan Kristínar Steinsd. sem skrifaði bók um Bjarna-Dísu !




Bókasafnið flytur í Rauða skólann !

Bæjarstjórnin tók þá ákvörðun s.l. haust að flytja bókasafn bæjarins í Herðubreið, yfir í rauða skólann. En plássið þar fyrir safnið er aðeins helmingur á við í Herðubreið, svo ég var önnum kafin í allan vetur við að grisja safnið, rýma til í geymslunni, svo allar gömlu bækurnar kæmust þar fyrir og fara með gömul gögn á Héraðsskjalasafnið. Geymslan er samt yfirfull ! Að lokum pakkaði ég svo niður öllum þeim bókum sem eiga að flytja í skólann og nú er komið að því að bera kassana á milli húsa af sjálfboðaliðum :)





Thursday, August 03, 2017

Hauststörfin framundan !

Við heimkomuna biðu ýmis störf eins og að slá garðinn sem var orðinn mjög loðinn. Það tók tíma því rigningardagar töfðu verkið. En merkilegt nokk, það eru komin þessi fínu ber, bæði aðalbláber og krækiber, svo ég dreif mig að tína og náði að safta hátt í 10 lítra. Bláberjanna njótum við hinsvegar sem eftirrétta með ís, ásamt öllum rauðu jarðarberjunum sem biðu okkar og hindberjum í gróðurhúsinu. Nokkrir rauðir tómatar biðu okkar líka, svo nóg var til að borða :)




Add caption

Á heimleið !

Þegar við komum til baka frá Noregi, stoppuðum við í nokkra daga hjá Bergþóri okkar og fjölskyldu og vorum mikið með barnabörnunum. Við fórum m.a. með Nínu á sýningu Brúðubílsins í Árbæ þar sem hátt í 3000 manns mættu. Einnig var mikið farið á leikvelli og fleira. Fórum líka til Ellu mágkonu í mat og hittum þar Hörpu mágkonu og Önnu Þorsteins, auk fjölskyldunnar. Þorsteinn Darri var nýbúinn að eiga afmæli og fékk því 2 gjafir og Nína fékk líka smágjafir í leiðinni :)