Thursday, March 23, 2017

Dagleg rútína !

Ýmislegt hefur á dagana drifið og margt sem gleymist, en lífið gengur sinn vanagang með Bolludag, Öskudag, sprengidag og aðra daga eins og Downs-daginn. Ég geymdi svolítið af gulrótum í kassa í gróðurhúsinu sem ég tók upp fyrir nokkru og naut þess að borða þær (þó litlar væru). Svo sit ég flest kvöld og hekla barnateppi fyrir RKI fataverkefnið, Föt sem framlag, en við erum nýbúnar að útbúa 19 gjafapakka sem fara til Hvíta Rússlands, ásamt 10 eldri pökkum sem voru tilbúnir. Við Rúnar tæmum fatagáminn á 2ja vikna fresti og svo eru kóræfingar, messur og jarðarfarir, sem þýðir að alltaf er nóg að gera hjá mér :)






Slóð á myndasöfn frá Húsavík

http://husavik.123.is/

Thursday, March 09, 2017

List í ljósi !

Laugardaginn 25. febrúar var fyrsti sólardagurinn hér á Seyðisfirði þetta árið (2017).
Mikið var um að vera og veðrið yndislegt.  Hátíðin List í ljósi, sem haldin var nú í annað sinn til að fagna komu sólarinnar, tókst vel í kvöld, í bland við undurfalleg norðurljós sem skreyttu stjörnum skrýddan himinn á sama tíma...





Slóðir á erlendar fornleifar !

https://www.youtube.com/watch?v=DfuCGgs7714