Tuesday, June 02, 2020

Önnur skyndiferð norður !

Hallur systursonur Rúnars skrapp með fjölskylduna til Húsavíkur föstudaginn fyrir Hvítasunnu og við ákváðum að renna líka norður og fengum hann til að kíkja á þakið á Hlíð og meta ca. kostnað við endurnýjun þess. Hittum Önnu Mæju + Sigga og ýmsa fleiri og fengum gott veður, svo ég gat slegið lóðina og sett sumarblóm við leiði M+P í kirkjugarðinum <3 nbsp="" p="">Mikið var um álftir á fjöllunum og við sáum líka hreindýr á nokkrum stöðum :)



Slóð á fallegar fugla og dýramyndir

https://www.flickr.com/photos/157908496@N08/albums/72157714437295276