Monday, January 07, 2019

Áramótin 2018-2019

Það skall á glórulaus stórhríð og hvassviðri á síðasta degi ársins 2018 og snjóaði frameftir degi, en loks um miðnætti var komið nógu gott veður til að fólk fór út og kveikti á rakettum + blysum. Siggi Birkir kaupir alltaf mikið af Björgunarsveitinni og var svo heppinn í þetta sinn, að vera dreginn út sem vinningshafi og fékk fullan kassa af rakettum og blysum, sem hann notaði þetta kvöld.
Á nýársdag og næstu vikuna var blíðuveður að mestu leyti og ferðafært um allt land.
En áramótabrennan beið fram á þrettándann, en þá var Siggi Birkir sonur okkar floginn út til Tenerife frá Akureyri, ásamt vinnufélögum sínum. Vonandi eiga þau góða daga þar í sólinni :)