Friday, June 26, 2015

Bókasafnið vorið 2015.

Það voru ýmsi verkefni í gangi hjá mér á bókasafninu síðari hluta vetrar. Ég hélt áfram að bæta við hillum í geymsluna og grisja gamlar bækur þangað inn. Til að fjölga hillunum á safninu, þá keypti ég 2  samstæður undir fræðibækurnar og gat flutt til eina hillusamstæðu, svo meira pláss varð til. 
Svo var aðal salurinn á safninu málaður, því ekki hafði unnist tími til þess þegar hinir 2 hlutar safnsins voru teknir í gegn fyrir fáum árum og allt þrifið í hólf og gólf, líka gömlu myndirnar á veggjunum. Fastir liðir voru svo vikulegar heimsóknir leikskólabarnanna og gekk það vel með einni smá undantekningu, þegar þau veltu afgreiðsluborðinu á hliðina, en það fór allt vel, sem betur fer :)






No comments: