Thursday, May 07, 2020

Skyndiferð norður !

Mánudaginn 4. maí hringdi Jóndi föðurbróðir minn í mig, til að segja mér, að útiljósið yfir tröppunum í Hlíð virtist vera að brotna frá veggnum.
Við Rúnar ákváðum því að renna norður daginn eftir og reyna að bjarga málinu !
Ferðin gekk vel, veður var gott og kunningjar hjálplegir með að lána kerru og stillas til að nota við að brjóta niður steinstykkið sem var brotið frá veggnum.
Rúnar braut þetta í áföngum eftir að hafa tekið rafmagnið af ljósinu og ég handlangaði það sem þurfti og þreif svo vel til eftir að við tókum allt saman og skiluðum því sem fengið var lánað.
Heim fórum við svo sólarhring eftir að við mættum á svæðið, með viðkomu í Dalakofanum til að kaupa r. silung eins og venjulega :)




No comments: