Tuesday, August 23, 2022

Bergþór og börnin í heimsókn !

 Áður en skólarnir byrjuðu dreif Bergþór sig með börnin Nínu og Þorstein í heimsókn til okkar á Sf.  Við gerðum ýmislegt með þeim, m.a. fórum við að skoða fossana og veiða á bryggjunum og gekk það mjög vel í eitt skiptið, því Þorsteinn veiddi 13 fiska og Nína 18 fiska. Kíktum líka upp í hellirinn við Fjarðará og svo tíndum við fullt af berjum, bæði bláber, krækiber og svo hindber og jarðarber hér í garðinum okkar. Margt fleira gerðum við þessa daga, en ég læt þetta nægja í þetta sinn <3 






No comments: