Monday, December 26, 2011

Árlegt fjölskyldukaffi



Það hefur orðið að venju að við mætum með eitthvað meðlæti til Binnu og Magga um hver jól og hittum þar alla stórfjölskylduna. Að þessu sinni bjó ég til tvær heitar brauðrúllur sem kláruðust (mér til ánægju) en nóg var af tertum og öðru góðgæti til að velja úr. Verst að allir eru orðnir saddir eftir tveggja daga ofát. En það er alltaf gaman að hittast um stund og spjalla saman. Engan vantaði nema Boga Þór og fjölskyldu og fjarstadda afkomendur okkar Rúnars...

1 comment:

Asdis Sig said...

Skemmtilegar myndir að vanda. Gleðilegt ár Solla mín og kærar þakkir fyrir ánægjuleg samskipti á árinu.