Við skelltum okkur tímanlega til Noregs, til Jóhönnu og fjölskyldu, því einkadóttir hennar fermdist 3. maí og Siggi Birkir mætti líka, svo það var fullt hús þegar allir voru mættir. Siva frænka bauðst til að hafa veisluna í þeirra STÓRA húsi, sem kom sér mjög vel og gekk ágætlega, en nóg var að gera við undirbúning dagana á undan. Auk þess var Sumaya að keppa í handbolta og hennar lið stóð uppi sem sigurvegari fáum dögum fyrir ferminguna. Við lögðum til ísl. flatbrauð með hangikjöti + r. silung og keyptum fermingartertu sem smakkaðist ágætlega :)
No comments:
Post a Comment