Kiddi Óskars hringdi til okkar og lét vita að brotist hefði verið inn í torfgeymsluna við Hlíð á Húsavík. Við ákváðum því að renna norður og reyna að bjarga málinu í 3ja sinn. Það tók Rúnar meira en hálfan dag að laga brotinn hurðakarminn og laga annað sem laga þurfti. Ég dundaði á meðan við að stinga upp þúsundir af fíflum á lóðinni og slá hana síðan. Nokkrir kunningar og vinir kíktu til okkar, m.a. Anna Ragg, Sturla Þorgríms og Kiddi sjálfur. En svo birtist Árni Bjössa Sör með hund í göngutúr og spjallaði við mig nokkra stund. Við kíktum svo til Jónda og Zakka kvöldið áður en við fórum aftur austur. Á heimleiðinni skruppum við niður á Vopnafjörð og heilsuðum uppá Halla Má sem er þar í tímabundinni geymslu á heilsugæslunni þar. Á bakaleiðinni sáum við 2 hópa af hreindýrum (alls 35 dýr) og veðrið var svo gott, að hitinn var meira og minna 19 gráður á leiðinni og fór upp í 22 gráður á Héraði og víðar.
No comments:
Post a Comment