Friday, October 08, 2010

Hittingur með afkomendunum !



Það hefur verið árlegur viðburður að áhöfn Gullvers hefur boðið mökum sínum í haustferð til útlanda og að þessu sinni var ferðinni heitið til Tyrklands. En þar sem við vorum svo heppin að Rúnar átti frítúr áður en við lögðum af stað og ég átti enn eftir nokkra sumarfrídaga, þá notuðum við hluta þeirra hjá afkomendum okkar áður en ferðin hófst. Við buðum þeim öllum í gæsaveislu og nutum stuttra en góðra samvista með þeim. Þegar við komum til baka var sjónarmunur á því hvað Sumaja Rós var orðin stærri og mannalegri og þá tók ég meðfylgjandi mynd af henni til samanburðar við fyrri myndir :)

1 comment:

Asdis Sig. said...

Sæl Solla mín og velkomin heim úr fríinu. Aldeilis að unga daman dafnar vel og mannast, ég hélt fyrst að þetta væri eitthvað annað barn :) kær kveðja til ykkar.