Tuesday, March 15, 2011

Í heimsókn hjá barnabörnunum :)




Þann 21. mars fer Jóhanna Björg með barnabörnin okkar til Noregs, þar sem tengdasonur okkar er í vinnu. Til að kveðja þau og aðstoða við að pakka saman og ganga frá húsinu, skruppum við Rúnar suður s.l. helgi. Við nutum líka samvista við syni okkar, tengdadóttur og fleiri ættingja og áttum góðar stundir saman. Við borðuðum saman helgarmatinn og reyndum eftir bestu getu að tæma frystikistuna sem var heldur full af matvælum fyrir rúmlega eina helgi. En við stefnum á að skreppa í heimsókn til þeirra og Þrastar mágs og fjölskyldu til Oslo í sumarfríinu og vonandi gengur það vel :))

1 comment:

Ásdís Sig. said...

Ætlar Jóhanna þín að setjast að með fjölskylduna í Noregi? hvar búa þau? yndislegar myndir af ykkur. Kveðja Ásdís