Friday, June 17, 2022

Fermingarbörnin mega ekki gleymast !

 Um Hvítasunnuna voru 4 börn fermd hér í Seyðisfjarðarkirkju og gekk það vel að vanda !



Góðir gestir og Húsó-systur !

 

Fyrir nokkru síðan hitti ég 2 skólasystur sem voru með mér í Húsó fyrir akkúrat 50 árum og skemmtum við okkur vel á spjallinu og rifjuðum upp gamlar minningar.
En svo mættu Sigrún Klara Hannesdóttir og Vigdís vinkona hennar til okkar 16. júní í blíðskaparveðri og margt og mikið spjallað og alltaf gaman að hitta gamla og góða vini.


Saturday, June 04, 2022

Alla og Beggi heimsótt í bústaðinn !

 Alla og Beggi sem voru með okkur í siglingunni 2019 hittu Rúnar á Egilsstöðum og buðu okkur í heimsókn í bústaðinn sem þau eiga í Úlfsstaðaskógi. Við vorum heppin og fengum ágætt veður til að kíkja í kaffi til þeirra og skoða heimilislegan og notalegan bústaðinn og umhverfið.

                                                Alla og Beggi á ferðalagi með okkur 2019.
                                            Falleg handavinna prýðir bústaðinn þeirra :) 
                                            Rúmgóður bústaður og allt til alls hjá þeim...
                                            Fallegt útsýni þarna, þó gróðursælt sé í kring :)