Saturday, November 26, 2022

Jólalaufabrauðið tilbúið !

 Það er fastur liður hjá okkur að steikja laufabrauð í nóvember, enda er það í miklu uppáhaldi hjá öllum í okkar fjölskyldu.  Við drifum í því að skreyta og steikja 40 kökur sem bíða jólanna og stór hluti þeirra fer með okkur suður til að nota með afkomendum okkar sem ætla öll að mæta og vera saman um jólin !




Fyrstu flækingarnir mættir !

 Á hverju hausti hafa mætt hingað ýmsir flækingsfuglar, mismargir og ólíkir, en oftar en ekki hafa mætt hingað gráhegarar sem hafa dvalið hér lengur eða skemur. Svartþrestir og gráþrestir hafa verið hér meira og minna allan veturinn og jafnvel litlu flækingarnir eins og hettusöngvarar og glóbrystingar. En að þessu sinni höfum við aðeins séð einn gráhegra og 3 svartþresti, einnig lítinn fugl sem líklega er gransöngvari? En þeir litlu hafa ekki gefið færi á myndatöku enn sem komið er, aðeins gráhegrinn sem við höfum séð 2 sinnum við höfnina !



Wednesday, November 16, 2022

Haustverkin í garðinum og vetrarblómin innandyra !

 Síðustu haustverkin í garðinum og blómin sem blómstra á veturnar !   Eftir að við komum heim frá Namibíu, dreif ég í að taka upp meiripartinn af gulrótunum sem orðnar voru nógu stórar og síðan að vefja litlu, nýju trjáplönturnar, gullregnið o.fl. ásamt stóru Lyngrósinni í vetrarklæði til varnar frosti, snjó og kulda. Það gekk allt saman vel. 

Svo eru það blessuð inniblómin sem blómstra á veturnar, eins og Nóvember-og-jólakaktusar, sem eru núna allir að fara að springa út. Einnig 2 af orkideunum, en sú þriðja er nýbúin að blómstra mér til mestu ánægju að vanda 💗

                                            Stór hluti gulrótanna voru í meðallagi eða meira !
                                           Sætu paprikurnar eru komnar í notkun og eru góðar.
                                            Orkideurnar eru að hamast við að mynda blómleggi.
                                                        Kaktusarnir eru farnir að springa út !



Sunday, November 13, 2022

Maturinn í Namibíu !

 Það verður að segjast að nánast allur sá matur sem við fengum í Namibíu var mjög góður og svo ríflega skammtaður að ekki var nokkur leið fyrir mig að klára svo stóra skammta.  En sem betur fer gistum við stundum á stöðum sem buðu uppá hlaðborð og var það mikill munur, því þá þurfti maður aldrei að leyfa því sem maður gat ekki torgað !   Hér koma svo sýnishorn af krásunum 😂



                                            Okkur fannst þessi eftirrétta-skreyting skemmtileg.


Gjaldeyrir Namibíu !

 Það er ýmislegt sem maður getur lent í á ferðalögum...Við lentum í óvæntu veseni við komuna til Namibíu, því við þurftum að útvega okkur gjaldeyri úr hraðbanka, en hann neitaði að afhenda mér peningana sem ég reyndi að taka út með kreditkortinu mínu. Það kostaði hringingu heim til Íslands og þar tók ekki betra við, því sú sem svaraði mér heimtaði aðgangsorð að debetkortinu mínu, þó það væri ekki einu sinni með í för. En Rúnari tókst að bjarga málinu, því hans kort virkaði og raunar mitt síðar þegar ég þurfti að nota það...




Friday, November 11, 2022

Síðasti næturstaðurinn, River Crossing Lodge !

 Daginn fyrir brottför ókum við til höfuðborgarinnar Windhoek og kíktum við á markaði frumbyggja sem voru með mikið af fallegu handverki til sölu. Þaðan ókum við uppá háa hæð nærri borginni. Þar gistum við á stað sem verið var að gera upp eftir Covidárin sem settu víða strik í lífið í Namibíu eins og annars staðar í heiminum. Þarna var fallegt útsýni yfir nágrennið og fallegt sólsetur eins og víða. En eftir morgunverð daginn eftir var ekið á flugvöllinn og flogið af stað í langferðina heim !







Síðasti göngutúrinn !

 Ákveðið var að við færum í einn göngutúr á svæði innan girðingar sem átti að vera öruggt. En í ljós kom að slæmt veður sem hafði komið þarna skömmu áður (haglhríð með þrumum og eldingum) hafði brotið mikið af trjágreinum sem eru allar þyrnum settar og lágu á göngustígunum. Við gengum auðvitað á þessar greinar og flestir fengu þyrna í gegnum skósólana sem meiddu suma, svo óhætt er að segja að þessi gönguleið var ekki hættulaus. En við sáum ýmislegt annað á leiðinni....



                                             Þarna gengum við framá beinagrind af bavíana...

                                                    Þarna var líka brotin skjaldbökuskel !
                                            


Síðasta safaríferðin !

 Í síðustu safariferðinni bauðst okkur að stoppa og fá kaffisopa, heitt kakó og Amarúla samanvið ef við vildum. Þetta var óvænt tilbreyting á öruggum stað og ég held að allir hafi haft gaman af :) 





Fuglar og smærri dýr !

 Minni dýrin og fuglarnir urðu svolítið útundan, en mér finnst þau alveg jafn mikilvæg og þau stærri. Læt því hér nokkrar myndir af þeim sem við sáum þarna og sum bara síðustu dagana !

                                                Þessi skrautlegi fugl var býsna algengur víða...
                                            Þessar heita Egypskar gæsir á ensku en eru endur.
                                            Þessa þúsundfætlu fann einn bílstjórinn okkar :) 
                                             Jarðíkornar ýmiss konar voru býsna algengir...
                                                      Blökurefur er þessi nefndur á íslensku :) 

                                            Þetta er eina skjaldbakan sem við sáum í ferðinni.


Villtu dýrin í friðlandinu í Erindi !

 Næstsíðasti gististaður okkar heitir Erindi (Old traders lodge) og þar mátti sjá flestar dýrategundirnar sem fólk hafði áhuga á að sjá. Þarna er mikið heimatilbúið vatnsból sem dýrin sækja í og m.a. vatnahestar og krókódílar halda þar til yfir daginn. Við fórum í 2 skiplagðar safariferðir á 2 bílum og sáum þá m.a. ljónapar sem hélt sýningu fyrir okkur, en annars sáum við aðeins 2 sinnum ljón í ferðinni.

                                          Þarna bíða krókódílarnir myrkurs, en fóru þá í ætisleit.
                                            Gíraffi að fá sér vatnssopa sem er stórmál fyrir þá.
                                            Vatnahestur gæðir sér á fílaskít sem flaut á vatninu.
                                            Bavíanar sáust af og til, en voru fljótir að forða sér.
                                                Nashyrningar eru orðnir fáir og sjaldséðir...
                                                    Ljónaparið sem hélt sýningu fyrir okkur :) 
                                                  Útsýnið frá herberginu okkar í Erindi :)


Minnstu dýrin eru fjölmennustu lífverurnar á jörðinni !

 Það vakti endalausa athygli að sjá alla termítahraukana hvar sem við fórum og það var mjög fróðlegt að fá að vita að þeir byggja sér þessi bú með drottningum sem fæða ótal afkvæmi allan sólarhringinn og til að þeir lifi, þá þarf bæði loftræstingu, mátulegan hita, vatn og næringu. Hér má sjá 2 sýnishorn, annars vegar bú sem milljónir termíta eru í og hinsvegar bú sem þeir hafa yfirgefið, það sést þegar búið er að opna göt og rifur á það.  Við sáum þarna hvítar antilópur í bland við aðrar tegundir og það var notalegt að vera þarna á pallinum við hótelið og geta fylgst með dýrunum allt í kring og tekið myndir...





                                                    Páfagauka sáum við hvergi nema þarna :) 
                                                 Allir kepptust við að ljósmynda dýrin þarna :) 


Villisvín í hótelgarðinum !

 Næst fórum við í Mushara Lodge þjóðgarðinn en gistum þar aðeins 1 nótt og fórum því ekki langt, en sáum þar villisvín í nærmynd, því þau mættu í garðinn til okkar í græna grasið og létu sem þau sæju okkur ekki, nokkra metra frá þeim. Svo var mikið smádýralíf þarna, eðlur, fuglar og fleira...


                                             Þetta villisvín kraup svona á meðan það át grasið.
                                                Þetta var ein af stærri eðlunum sem við sáum.

                                              Þessi fluga hélt til við sundlaugar hér og víðar...