Tuesday, October 04, 2022

Fiskikörin sótt í fjörurnar og föllnu trén fjarlægð !

 Sem betur fer snérist vindáttin í vonda veðrinu um daginn og þess vegna flaut stór hluti af fiskikörunum uppí norðanverðar fjörurnar í firðinum, svo hægt var að sækja þau bæði á bílum og á bátum.

Einn skúr við Hól fauk líka yfir götuna en er aftur kominn á sinn stað með trausta undirstöðu !