Haustið var óvenju gott að þessu sinni og það bjargaði uppskerunni sem leit út fyrir að yrði lítil eftir kalt og sólarlaust sumar. En ég náði að tína nokkur kíló af berjum og frysta og safta fyrir veturinn. Kartöflurnar voru í meðallagi og gulræturnar vel í meðallagi, svo ég er alveg sátt. Það voru meira að segja bara örfáar gulrætur skrítnar í laginu, en stundum hef ég fengið óþarflega margar slíkar í einu :)
Wednesday, November 04, 2015
Slóð á fornleifauppgröft á Geirsstöðum eftir Steinunni Kristjáns
https://notendur.hi.is/~sjk/GST_1997.pdf
Saturday, October 24, 2015
Friday, October 16, 2015
Slóð á gamlar Íslandsmyndir !
https://www.flickr.com/photos/cornelluniversitylibrary/sets/72157623945632982/
Friday, October 09, 2015
Haustferð til Tyrklands !
Vikuna 30. sept. til 7. okt. vorum við Rúnar ásamt hluta áhafnar Gullvers og mökum á ferð í Side í Tyrklandi. Hér koma nokkrar minningamyndir úr ferðinni, en flogið var frá Akureyri. Hitastigið úti var alltaf í kringum 30°C og vel rakt. Fullt fæði á hótel Side Star Elegance og nóg af forleifum að skoða og útsölur til að versla á ....
Hrein og klár lúxusferð !
Hrein og klár lúxusferð !
Slóð á Kortabók um örnefni á Húsavík
Frá Safnahúsinu á Húsavík;
http://www.husmus.is/images/stories/skjol/utgafa/kortabok/kortabok2.pdf
http://www.husmus.is/images/stories/skjol/utgafa/kortabok/kortabok2.pdf
Friday, September 25, 2015
Haustferð til Húsavíkur !
Um síðustu helgi vildi svo vel til að Rúnar var heima í fríi og veðrið var nokkuð gott, svo við ákváðum að skreppa norður í smá veiðitúr og heilsa upp á ættingja og vini um leið og við mundum ganga frá Hlíð fyrir veturinn. Gunna frænka á Meiðavöllum var jarðsett þessa helgi og við kíktum í Garð á heimleiðinni, einnig kíktum við til Alla á Mánárbakka með dót sem ég vildi losna við og skoðuðum Nesgjá við Lón sem ég hef aldrei séð fyrr. Boddi frændi var á spítalanum eftir aðgerð og við Didda spjölluðum lengi við hann og Jóhann líka, auk Hillu og Gulla frænda. Allt gekk að óskum og hér koma nokkrar minningamyndir :)
Heimatilbúið Maionnaise !
http://www.thekitchn.com/how-to-make-mayonnaise-with-an-immersion-blender-cooking-lessons-from-the-kitchn-206496
Taust er lykilatriði !
Svona einkaupplýsingar setur maður ekki á netið !
https://www.google.is/webhp?sourceid=chrome-instant&ion=1&espv=2&ie=UTF-8#q=ei%C3%B0abr%C3%A6%C3%B0ur
https://www.google.is/webhp?sourceid=chrome-instant&ion=1&espv=2&ie=UTF-8#q=ei%C3%B0abr%C3%A6%C3%B0ur
Sorglegar staðreyndir !
Allir verða að hlýða lögum hverrar þjóðar og engar undantekningar !
Sjá frásögn á þessari slóð; http://www.therebel.media/_i_was_born_in_sweden
Sjá frásögn á þessari slóð; http://www.therebel.media/_i_was_born_in_sweden
Wednesday, September 16, 2015
Tuesday, September 01, 2015
Noregsferðin 2015
Við skruppum í heimsókn til Jóhönnu og fjölskyldu í Noregi og hittum svo vel á að vera þar á afmælum beggja barnanna. Við hittum líka Þröst mág og fjölskyldu og Harpa mágkona kom líka fljúgandi frá Stavanger til að samgleðjast okkur. Einnig héldum við frænkuhitting í minni föðurætt og nutum gjafa náttúrunnar í formi berja, sem nú vantar sárlega heima á Fróni.
Læt hér nokkrar myndir fylgja, sem segja meira en nokkur orð :)
Læt hér nokkrar myndir fylgja, sem segja meira en nokkur orð :)
Slóð á fornleifafund í Ástralíu
http://worldnewsdailyreport.com/australia-archaeologists-unearth-ruins-of-viking-trade-center/
Sunday, August 16, 2015
Gróðurhús og fleira ...!
Vorið var kalt en ég setti samt niður útsæði og gulrætur á venjulegum tíma. Þrátt fyrir sólarlítið og svalt sumar, þá lítur út fyrir sæmilega uppskeru, því skjólið í kössunum skiptir máli.
En gróðurhúsið var lengi að rísa, mest vegna þess að Rúnar var svo upptekinn á sjónum. En að lokum tókst að klára það eins og til stóð og nú standa vonir til að það verði að gagni næstu árin við uppvöxt á ýmsum plöntum :)
Norðurferð og Mærudagar á Húsavík
Við urðum samferða Diddu systir og hennar fjölskyldu norður og áttum þar góða daga saman á Mærudögum. Veðrið var nokkuð gott og þröngt máttu sáttir sitja í Hlíð. Við hittum marga góða og gamla vini og ættingja og hlökkum til að koma aftur norður, því þetta var of stutt stopp fannst mér !
Litla Guðrún Ásta hennar Rebekku var að koma norður í fyrsta sinn og undi sér bara vel með elskan litla :)
Litla Guðrún Ásta hennar Rebekku var að koma norður í fyrsta sinn og undi sér bara vel með elskan litla :)
Sonarsonur fæddur í Reykjavík !
Þann 22. júlí fæddist 17 marka myndarlegur sonarsonur á fæðingardeild Landspítalans og gekk fljótt og vel, loksins þegar hann fór af stað. Á meðan við biðum nutum við samvista við sonardótturina Nínu Björgu sem sannarlega lífgar upp á tilveruna með nærveru sinni :) Hún er mjög dugleg að borða og það var gaman hjá okkur í Húsdýragarðinum og róló og víðar og svo söng hún og dansaði fyrir okkur afa í 60 ára gömlum kjól af Sollu ömmu !!!
Ekið suður á land !
Bergþór sonur okkar og barnsmóðir hans og sambýliskona áttu von á barni í kringum 20. júlí, svo við drifum okkur suður til að vera nærstödd þegar litli maðurinn kæmi í heiminn.
Veðrið var óvenju gott á leiðinni (miðað við sumarið hér eystra) og ég alltaf með myndavélina á lofti, enda nóg af fallegu og áhugaverðu myndefni sem segir meira en mörg orð :)
Friday, June 26, 2015
Landsþing Lions á Seyðisfirði.
Lion hélt Landsþing sitt hér á Seyðisfirði á vordögum og var þá mikið um dýrðir og mikil vinna á bakvið þetta fjölmenna mót. Ég hitti nokkra Húsvíkinga eins og við mátti búast og við í kórnum sungum fyrir gestina á aðalkvöldinu og öll gistirými í bænum voru bókuð, svo eitthvað sé nefnt :)
Leikskólinn Sólvellir 40 ára !
Leikskólinn Sólvellir hélt upp á 40 ára starfsafmælið á vordögum og tókst það með ágætum eins og við mátti búast.
Bókasafnið vorið 2015.
Það voru ýmsi verkefni í gangi hjá mér á bókasafninu síðari hluta vetrar. Ég hélt áfram að bæta við hillum í geymsluna og grisja gamlar bækur þangað inn. Til að fjölga hillunum á safninu, þá keypti ég 2 samstæður undir fræðibækurnar og gat flutt til eina hillusamstæðu, svo meira pláss varð til.
Svo var aðal salurinn á safninu málaður, því ekki hafði unnist tími til þess þegar hinir 2 hlutar safnsins voru teknir í gegn fyrir fáum árum og allt þrifið í hólf og gólf, líka gömlu myndirnar á veggjunum. Fastir liðir voru svo vikulegar heimsóknir leikskólabarnanna og gekk það vel með einni smá undantekningu, þegar þau veltu afgreiðsluborðinu á hliðina, en það fór allt vel, sem betur fer :)
Wednesday, March 11, 2015
Varadero - fyrir ferðamenn !
Ströndin við Varadero á skaganum sem er hlaðinn túristahótelum er hvít og falleg og þar er hægt að sóla sig í næði, njóta návistar fallegra og gæfra fugla sem fengu sér bað með okkur og borða á sig gat, ef maður hafði lyst, en ég var aðallega þyrst í hitanum og var dugleg að drekka ananassafa og Pina Colada sem var drykkurinn minn í þessari ferð :)
Subscribe to:
Posts (Atom)

