Á brottfarardegi fóru allir af stað, nema við þrjú og Haukur sem fylgdi okkur. Við renndum niður á syðsta odda Danmerkur, kíktum þar á söfn og skoðuðum hæstu sjávarklettana á Mön, sem mér finnst að ættu að heita Himmelbjerget frekar en litla heiðin á Jótlandi sem fékk það nafn. Við snæddum á frábæru veitingahúsi í Marielyst og gengum svo frá húsinu í hendur umsjónarmanns og héldum í norður meðfram endalausum maisökrum o.s.frv...
Sunday, August 31, 2014
Vikudvöl í Marielyst :)
Við vorum svo heppin að fá blíðuveður þessa viku sem við dvöldum í sumarhúsinu í Marielyst. Við skoðuðum nágrennið, m.a. Nyköbing og eyddum degi á skemmtistaðnum Lalandia. Sumir voru svo hraustir að þeir skelltu sér í sjósund á kvöldin en aðrir höfðu gaman af veiðiferðum o.s.frv... Einnig var haldið upp á afmæli 4 barna og ungmenna í hópnum sem öll eiga afmæli í ágúst....
Ættarmót í Marielyst !
Nú var komið að því að hitta alla ættingjana sem höfðu boðað komu sína í sumarhús við Marielyst. Þangað mættu systkini Rúnars og hluti af fjölskyldum þeirra, einnig Valla frænka þeirra og Haukur Friðriks. Síðast en ekki síst þá eyddum við heilum degi með dætrum Rúnu og fjölskyldum þeirra í blíðskaparveðri og farið var í leiki og mikið spjallað eins og alltaf þegar fólk hittist. Börnin nutu sín líka vel. Semsagt góður dagur :)
LEGOLAND í Danmörku
Næsti áfangi var að fara í Legoland, en þar eyddum við heilum degi í sól og hita og voru allir orðnir þreyttir að kvöldi dags, enda mikill mannfjöldi og langar biðraðir næstum við öll tæki, svo aðeins var hægt að prófa nokkur þau vinsælustu.
Hirtshals í Danmörku !
Við komum til Hirtshals snemma morguns, en þurftum að bíða þar eftir Jóhönnu okkar og fjölskyldu sem komu frá Osló síðla dags. Við vorum búin að skanna bæinn og velja okkur tjaldstæði og veitingahús til að borða á, þannig að allt gekk fljótt og vel fyrir sig. Morguninn eftir fórum við á glæsilegt sædýrasafn, þar sem börnin nutu sín vel. Við héldum svo áfram til Horsense, þar sem gist var næstu nætur og farið m.a. í heimsókn til Gyðu okkar Gunnar í Aarhus og hittum Mark, breskan sambýlismann hennar sem ég kann vel við og óska þeim alls hins besta. Í garðinum hjá þeim var mikið af Maríuhænum sem dótturdóttir okkar er mjög hrifin af og safnaði mörgum slíkum í lófann án þess að skaða þær. En í Horsense fórum við á krabbaveiðar og veiddum vel. Það var býsna spennandi að krækja í krabbana og koma þeim í þetta ílát. En allir fengu þeir þó frelsi að lokum, enda vissum við ekki hvort óhætt væri að éta þá á þessum árstíma (?)
Fyrsti áfanginn var Færeyjar :)
Við fórum frá borði um miðja nótt í kolniða myrkri og svartri þoku. Ókum til Vestmanna og sváfum þar í húsbílnum á húsbílastæði til morguns og tókum daginn rólega. Kíktum á gamalt sögusafn, enda sagan á hverju strái ef vel er að gáð. Héldum svo gegnum 2 neðansjávargöng yfir til Klakksvíkur, þar sem við gistum næstu nótt eftir að hafa skoðað okkur vel um á eyjunni og annari til. Heimsóttum flesta þá staði sem við höfðum komið til áður, svo Siggi fengi að sjá þá, eins og Saksun, Fuglafjörð, Gjána, Kirkjubæ og fleira. Síðasta deginum eyddum við að mestu leyti í Þórshöfn í sól og blíðu og nutum þess að sjá Ólafsvöku-skemmtun í fullum gangi með tilheyrandi mannfjölda, skreytingum og uppákomum. Ókum að lokum um borð í Norrænu um miðnætti eftir 3ja sólarhringa ánægjulega dvöl í eyjunum.
Nokkrar gestakomur í sumar :)
Rúmri viku áður en við sigldum með Norrænu í sumarfrí, þá komu Ella, Árni og Auður Lóa austur í heimsókn. Því miður var Rúnar fjarstaddur á sjónum, en hann hitti þau öll í Danmörku 2 vikum síðar. Næst komu Bergþór, Hildur og Nína Björg, en við fengum aðeins að njóta þeirra í nokkra daga, því ferðin til Færeyja og Danmerkur gat ekki beðið, þau voru því skilin eftir hér heima og hafa vonandi átt nokkra góða daga í viðbót með Kollu systur Hildar og fjölskyldu sem komu akandi austur sama dag og við fórum. Eftir ferðina út komu, Eiríkur, Auður og börn austur eins og þau hafa gert undanfarin sumur. Aðrir hafa stoppað skemur og það gleymdist jafnvel að taka myndir af sumum gestunum, því miður !
Wednesday, July 16, 2014
Fallegur prjónakjóll !
Falleg handavinna á þessari slóð; http://www.ravelry.com/patterns/library/muti-dress
Tuesday, July 08, 2014
Fallegur heklaður stelpukjóll
Á þessari slóð má sjá kjólinn,
https://www.facebook.com/photo.php?fbid=10202491529995757&set=pcb.10202491530635773&type=1&theater
https://www.facebook.com/photo.php?fbid=10202491529995757&set=pcb.10202491530635773&type=1&theater
Saturday, July 05, 2014
TRÚARJÁTNING BÓLU-HJÁLMARS
Ekki man ég lengur hvar ég fann eftirfarandi TRÚARJÁTNINGU BÓLU-HJÁLMARS.
En þrátt fyrir vandlega leit á netinu, hefur mér ekki tekist að finna þessa myndrænu játningu fátæka og bitra bóndans í Bólu sem giftist frænku sinni og varð að sætta sig við óblíð kjör langa ævi.
Ég fann hana ekki heldur í Ljóðmælum hans sem gefin voru út af Bókaútgáfu menningarsjóðs.
En ég er 100% sammála þessari skoðun Hjálmars Jónssonar sem kenndi sig við Bólu í Skagafirði, en hann var fæddur Þingeyingur í báðar ættir og ólst upp hjá vandalausum við Eyjafjörð.
En þrátt fyrir vandlega leit á netinu, hefur mér ekki tekist að finna þessa myndrænu játningu fátæka og bitra bóndans í Bólu sem giftist frænku sinni og varð að sætta sig við óblíð kjör langa ævi.
Ég fann hana ekki heldur í Ljóðmælum hans sem gefin voru út af Bókaútgáfu menningarsjóðs.
En ég er 100% sammála þessari skoðun Hjálmars Jónssonar sem kenndi sig við Bólu í Skagafirði, en hann var fæddur Þingeyingur í báðar ættir og ólst upp hjá vandalausum við Eyjafjörð.
TRÚARJÁTNING BÓLU-HJÁLMARS
Rimamargur mun oss stigi sá,
frá duftinu til heilagleikans hæða,
hljótum taka margföld skipti klæða,
verðugir þar til verðum Guð að sjá.
Thursday, June 19, 2014
Góð leiðsögn til að hekla jaðrana !
Hekluleiðbeiningar
http://www.youtube.com/watch?v=3LxYpo-tyi8&app=desktop
http://www.youtube.com/watch?v=3LxYpo-tyi8&app=desktop
Friday, June 13, 2014
Peysukjóll á eina litla :)
sjá slóðina á facebook,
https://www.facebook.com/photo.php?fbid=146589795503833&set=a.146589548837191.33653.141075986055214&type=1&theater
https://www.facebook.com/photo.php?fbid=146589795503833&set=a.146589548837191.33653.141075986055214&type=1&theater
Góðar pæ-uppskriftir !
Góður uppskriftavefur hjá Eldhússögum
http://eldhussogur.com/2013/07/30/rabarbara-og-perubaka-med-stokkum-hafrahjupi/
http://eldhussogur.com/2013/07/30/rabarbara-og-perubaka-med-stokkum-hafrahjupi/
Friday, May 09, 2014
4 nátta ferð til Dublin frá Egilsstöðum !
Það er ekki á hverjum degi sem maður fær tækifæri til að fljúga erlendis frá Egilsstaðaflugvelli, en það bauðst okkur að gera dagana 24.-28. apríl s.l. ásamt um 360 manns í 2 vélum. Voru það mest austfirðingar, flestir frá Höfn (starfsmenn og makar hjá Skinney - Þinganes) og svo nokkrir tugir austfirskra kvenna í Húsmæðraorlofsferð, flestar af Héraði. Nokkra kunnuga hittum við einnig að norðan og var þetta hin besta ferð á allan hátt, því veðrið lék líka við okkur, þrátt fyrir slæmar spár fyrir brottför. Við fórum í borgarferð, sveitaferð, írska kvöldskemmtun og röltum svo um alla miðborgina, skoðuðum söfn, kirkjur, fallega garða og mannlífið á götunum sem var mjög líflegt. En innkaup og heimsóknir í verslanir voru í lágmarki :)
Læt ég örfáar myndir nægja sem sýnishorn úr ferðinni.
Læt ég örfáar myndir nægja sem sýnishorn úr ferðinni.
Subscribe to:
Posts (Atom)
