Monday, April 14, 2025

Snjó-hret á auða jörð eftir einmuna blíðu !

 Veðrið var óvenju gott seinni hluta mars og fyrrihluta apríl, svo jörð varð auð og allur gróður að springa út. En auðvitað hlaut að koma einhver páskagusa, þó það hefði getað verið verra, því hitinn var um frostmark. Hópar farfugla voru komnir og náttúran öll að lifna við, svo viðbrigðin voru mikil :( 




Tuesday, April 01, 2025

Fótboltamót á landsvísu á Akureyri um miðjan mars !

 





Helgina 14.-16. mars fórum við norður til Akureyrar að hitta Bergþór okkar og fjölskyldu hans,          því Þorsteinn var að keppa í fótbolta ásamt félögum í íþróttahöllinni þar. Við gistum hjá þeim í 
bústað þar sem nokkrar kanínur héldu til og glöddu krakkana.

Gummi á Bakka óheppinn !

 


Gummi á Bakka slapp með skrekkinn þegar hann lenti útaf á jeppanum um daginn
og eyðilagði han alveg, eftir að Rúnar hafði gert við hann skömmu áður :(

Norræna mætt á ný eftir árlega miðsvetrar fjarveru !

 


19. mars. Ferjan Norræna mætti hingað aftur eftir árlega "vetrarpásu" 
og veðráttan undanfarið verið óvenju mild miðað við árstíma. 

Wednesday, March 05, 2025

Frekar snjóléttur vetur það sem af er !

 

Það hefur verið lítið um snjó sem betur fer, eftir að við komum heim frá Kanarý, en þó að frost hafi verið með minna móti, þá hefur víða verið hægt að sjá svona klakastrá við ár og læki :) 

Friday, February 28, 2025

SÓLARFRÍ Í SKAMMDEGINU !

 

Til að stytta langan, dimman og kaldan vetur, þá ákváðum við að skreppa til Kanarý í 3 vikur eins og fyrir ári síðan og dvöldum aftur á sama Victoria (Bull) hótelinu í fullu fæði í herbergi 822 á efstu hæð. Við hittum marga Íslendinga sem við þekktum og fleiri sem við þekktum ekki.
Vorum dugleg að fara daglega í gönguferðir og sóla okkur þess á milli. 
Fórum líka oft á minigolfvöllinn að hitta fólk og ná í bækur til að lesa !







Tuesday, January 21, 2025

Vetur í bæ !

 Þann  18. janúar fór að snjóa svo um munaði og kostaði mikinn mokstur og vesen. En 2 dögum síðar kom stórhríð og allt fór á kaf, svalirnar fylltust af snjó hátt uppá stofuglugga og snjórinn á þaki Gróðurhússins var svo blautur og þungur að hann næstum sligaði þakið. Ég náði að sópa ofan af því, áður en það brast, en feðgarnir náðu að moka svalirnar, því ég hjálpaði lítið til þar. Bara það að moka slóð undir svalirnar svo hægt væri að fóðra vetrarfuglana þar svolítið á hverjum degi, var meira en nóg puð.

Wednesday, January 08, 2025

Útför Svanbjargar Sigurðard. frá Hánefsstöðum

 Á milli hátíðanna lést Svanbjörg Sigurðard. á Hánefsstöðum, en ég hafði hitt hana daglega um miðjan desember, því ég tók að mér að lesa fyrir hana gamalt handrit sem hún gat ekki lesið sjálf og sá hana í síðasta sinn skömmu fyrir jól. Ég er henni þakklát fyrir allar góðu samverustundirnar á liðnum árum.  Útför hennar fór svo fram í dag, 8. janúar að viðstöddu margmenni.

Jólin okkar 2024 !

 Jólahátíðin leið furðu fljótt og þrátt fyrir frost og kuldanæðing, þá var snjór í lágmarki og því fært um allt, þó ekki væru nein ferðalög á milli okkar og ættingjanna þessi jólin. Við höfðum það því óvenju rólegt að þessu sinni og dunduðum okkur við að pússla erfitt púsl og lesa þessa daga.


Sunday, December 08, 2024

Eitt af mörgu sem gleymdist að skrá hér :)

 Ég er ekki nógu dugleg að muna eftir að skrá viðburði, heimsóknir og fleira, en einu langar mig að bæta hér við, svo það gleymist ekki. Í lok október, áður en fór að snjóa, þá vorum við Rúnar á leið frá Egilsstöðum til Seyðisfjarðar, þegar við sáum unga konu Veru, með dóttur sem heitir Ava, bíðandi við brúna í útjaðri bæjarins. Við fengum að vita að þær langaði að kíkja til Seyðisfjarðar og komu þær því með okkur heim á Sf. En svo kom í ljós að enginn strætó fór til Egilsstaða síðdegis, svo Rúnar varð að skutla þeim aftur til baka. Þær eru frá Dusseldorf í Þýskalandi.

Samvera í jólaveislu eldri borgara í Öldutúni !

  Fyrstu helgina í desember var ákveðið af nýju stjórninni í Öldutúni, að borða saman hátíðakvöldverð og allir að mæta með jólapakka sem merktir voru með nr. og allir fengu að draga nr. til að fá óþekktan pk. Við sátum við borð með Grétari Einars og Maríu Guðmunds og spjölluðum mikið 😊


Jóla-dinner í tilefni af afmæli Rúnars !

 Garðar Þórðarson og félagar í Skaftfelli buðu uppá hátíða-kvöldverð fyrstu helgarnar í desember og við ákváðum að halda þannig uppá afmæli Rúnars, sem tilbreytingu í stað jólahlaðborðs. Maturinn var 5 rétta og smakkaðist alveg ágætlega og kostaði auðvitað talsvert eins og við mátti búast :)  

Minningafundur um Önnu Karlsdóttur !

 Unnur Óskarsdóttir var svo dugleg að hóa í okkur gamlar sáló-vinkonur hennar Önnu Karls, til að minnast þess að hún hefði orðið 65 ára núna 5. desember. Ca. 20 konur mættu og Rannveig Þórhalls hélt stutta ræðu um fornleifafundinn hjá Firði, að ósk Unnar og okkar allra sem höfum áhuga á því eins og Anna heitin. Að ósk Unnar, þá mætti ég með nokkur andleg spil og rúnir til gamans fyrir suma að skoða og prófa.  Einnig var þarna í Herðubreið sölusýning á málverkum og fleira handverki fá ýmsum...


Thursday, November 28, 2024

100 ára ártíð Eiríks tengdapabba !

 Í lok október mættu hingað systkini Rúnars og makar í tilefni af því að Eiríkur tengdapabbi hefði orðið 100 ára. Við leigðum Jónshús handa hópnum og allt gekk vel og við snæddum m.a. saman 2 góðar kvöldmáltíðir, aðra hér hjá okkur og hina á Egilsstöðum. Þröstur mágur mætti með ljósmyndasýningu sem var sett upp í anddyri Herðubreiðar og var býsna vel sótt og seldi hann nokkrar myndir.


Tuesday, November 12, 2024

Skroppið til Húsavíkur o.fl...

 Þar sem veður og hitastig hefur verið óvenju gott og hlýtt það sem af er nóvember, þá ákváðum við að skreppa til Húsavíkur, bæði að fara skoðunarferð í Bjarmaland en einnig að ná í vissa hluti og skila dóti á Safnahúsið sem ég var búin að yfirfara og lagfæra það sem þurfti að laga.  Allt gekk vel og við vorum heppin með veður og færð og heimsóttum Villu vinkonu og Fúsa og fengum okkur vetrarbirgðir af reyktum silung frá Svartárkoti !


Friday, October 18, 2024

LEIKSKÓLINN SÓLVELLIR 50 ÁRA

 Um þetta leiti eru liðin 50 ár frá því að Leikskólinn Sólvellir á Seyðisfirði hóf starfsemi sína, en þá var ég búin að vera hér í bænum í hálft ár. Íbúum bæjarins var boðið til veislu og margir mættu, m.a. tugur af fyrri starfskonum leikskólans og er ég ein úr þeirra hópi. Þess má geta að við fyrrum leikskólakonur ákváðum að hittast, borða saman og rifja upp gamlar og góðar samverustundir á Sóvöllum o.fl.

 

Sunday, October 13, 2024

VÁ - félag um vernd Seyðisfjarðar !

 Í gærkvöld bauð Vá -félag um vernd fjarðar, stuðningsfólki sínu í Herðubreið í tilefni af því að tekin var upp viðburður varðandi vernd fjarðarins gegn yfirgangi og ásælni norskra laxeldismanna.   Mættu þangað nokkrir gestir eins og Ómar Ragnarsson sem flutti það skemmtilega rímaða tölu yfir heimafólki og gestum sem voru líklega í kringum 200 manns. Tóku viðstaddir undir eftirfarandi: "Stöndum vörð um Seyðisfjörð, við eigum aðeins eina jörð." En fyrst var boðið uppá fordrykk og léttan kvöldverð og svo mætti Benni Hemm Hemm og flutti söng og tónlist ásamt nokkrum heimamönnum og gestum. Sýnd var vídeó og dróna-upptaka af ljósabandi sem lá yfir fjörðinn... Drónaupptakan m.a. frá Sigga B. syni okkar 💕


Saturday, October 05, 2024

Snjóflóðavarnargarðarnir !

 Nú er búið að byggja 3 risastóra SNJÓFLÓÐAVARNARGARÐA undir Bjólfinum og gott útsýni ofan af þeim yfir bæinn. Við skruppum uppá þann nýjasta og ég tók þar nokkrar myndir fyrir stuttu !