Friday, September 18, 2009

Til HAMINGJU - Ljótu H.......




Í tilefni af verðskulduðum sigri Ljótu Hálfvitanna frá Húsavík, í Popppunkti í kvöld, þá verð ég að óska þeim enn og aftur TIL HAMINGJU MEÐ GLÆSILEGAN SIGUR STRÁKAR - þið voruð frábærir og heimabæ ykkar og Þingeyingum til sóma :o)
Ég samgleðst yfir sigrinum eins og sönnum Þingeyingi ber og vona að þið haldið áfram að gera jafn mikla lukku hér eftir sem hingað til.

Það er sniðugt að hugsa til þess að tveir meðlimir hljómsveitarinnar skuli vera fyrrum bekkjarbræður Jóhönnu Bjargar og tveir synir bekkjasystra minna, en nóg um það :o)
Ég ætla að reyna að koma hér inn mynd af strákunum en það gengur eitthvað illa í bili, því forritið harðneitar að hlaða inn myndinni sem ég valdi af þeim, veit ekki hvað veldur en vona að ég hafi vinninginn á endanum eins og þeir ljótu....!

1 comment:

Asdis Sig. said...

Sæl og blessuð. Ég er jafn stolt og þú, man þegar ég passaði Mumma "litla" hennar Bínu og lék við hann þegar ég heimsótti Bínu hér í den, duglegir drengir og okkur til sóma. Kær kveðja í blíðuna fyrir austan, hér er reyndar sól og 12 stiga hiti, var að koma úr Bónus.