Það voru heilmikil hátíðahöld víða um land í dag, 17. júní í tilefni þess að nú eru liðin 80 ár frá því að Ísland varð sjálfstætt lýðveldi. Hér á Seyðisfirði voru fermd 4 börn í morgun og mikið um að vera eftir hádegið á útimessu við kirkjuna í tilefni dagsins. Myndina af kórnum tók ég við lok fermingar messunnar, enda söng ég með kórnum. En ég tók engar myndir í útimessunni, því miður ! Hinsvegar var ég búin að hreinsa stóran hluta af illgresinu við kirkjuna, síðustu 2 daga og ekki í fyrsta skipti !
Monday, June 17, 2024
Áhrif hretsins á fuglalíf hér í firðinum virðist lítið sem betur fer !
Til allrar hamingju virðist júní-hretið ekki hafa skaðað fuglalífið mikið, því nú má sjá heilmikið af ungum á ferð hér við ár og sjó og við gleðjumst yfir því. Kríur og Spóar liggja enn á eggjum og vafalítið birtast ungar hjá þeim fyrr en varir, ef veðrið helst þolanlegt áfram...
Thursday, June 06, 2024
Vetrarveður á Norður og Austurlandi í byrjun júní
Það óvænta gerðist eftir nokkra góða sumardaga um mánaðarmótin maí-júní, að veðurspáin breyttist verulega og skall á norðan rok með mikilli úrkomu, ýmist slydduregni eða hríð. Verst varð ástandið á Norðurlandi, en skömminni skárra fyrir austan. Ég hafði áhyggjur af fuglunum og litlu lömbunum sem voru komin út í náttúruna. Sem betur fer náði ekki að frysta hér eystra og snjóinn tók fljótt upp, svo vonandi sleppum við þokkalega frá þessu, en ástandið fyrir norðan er grafalvarlegt og óvíst hvernig það fer, því miður :(
Heimsókn til Húsavíkur !
Rúnar minn þurfti að komast í nýja ristilspeglun á Akureyri, svo við drifum okkur til Húsavíkur og gistum þar nóttina áður en við fórum inneftir. En í Hlíð þurfti að taka til hendinni og ég hreinsaði alla fífla og illgresi á stéttunum og þar í kring og Rúnar sló garðinn. Það var mikill munur. Rúnar fékk góða skoðun og við heimsóttum bæði Sigrúnu + Sigga og líka Guðný Önnu sem komin er í hjólastól eftir að hún fékk blóðtappann og lamaðist vinstra megin. Á Húsavík kíktum við til Önnu Mæju og Sigga og fengum okkur að borða í golfskálanum og hittum þar kunnuglegt fólk. Svo fann ég gamla möppu fulla af gömlum bréfum frá mömmu og afa Theodór sem ég tók með mér og hef verið að lesa þau, enda fróðlegt að mörgu leiti...
Thursday, May 23, 2024
50 ára útskriftarafmæli Rúnars og félaga úr Vélskólanum !
Rúnar ákvað að við færum í siglingu á Rín með félögum hans úr 3 deildum Vélskólans og mökum þeirra. Við ókum suður tímanlega og gistum í Keflavík nóttina fyrir brottför til Frankfurth, en þaðan var ekið yfir til Strassborgar í Frakklandi og siglt síðan niður Rín með farþegaskipinu La Boheme til Koblens við ármót Mosel + Rínar. Síðan var snúið við og skoðaðir helstu staðir á bakaleiðinni eins og Heidelberg (Lorelei) og Rudesheim þar sem við fórum í vínsmökkun... Eftir skoðunarferð um Strassborg var ekið til baka til Frankfurt og miðborgin skoðuð en síðan beint á flugvöllinn og aftur heim á Frón !
A-sveinabekkurinn var lítið fjölmennari...
En B-bekkurinn var lang fjölmennastur !
Brúsastólar í Heidelberg...Vínsmökkun í Rudesheim...
Thursday, May 09, 2024
Vorverkin í garðinum langt komin !
Eftir að veðrið hlýnaði og batnaði, þá hvarf snjórinn fljótt, enda hamaðist ég við að dreifa úr ruðningum og mestu sköflunum. Eftir það fóru laukar og blóm að gægjast uppúr moldinni og krókusar að springa út fyrstir af öllum. Ég dreif svo í að stinga upp beðin og setja niður kartöflur 8. maí og grænmeti (undir plast) áður en við förum í siglingu á Mosel og Rín með skólabræðrum Rúnars úr Vélskólanum í tilefni af 50 ára útskriftarafmæli þeirra.
Fyrstu fuglarnir farnir að verpa...
Fleiri flækingsfuglar í heimsókn !
Það var óvænt þegar Fjallafinku-par mætti til okkar einn daginn og hélt til hér hjá okkur nokkra daga, mest í fóðurbúrinu. Þau hafa trúlega verið nýkomin og mjög svöng, en síðan hurfu þau eins og aðrir...
Áður en Fjallafinkurnar mættu, þá kom hér stök Silkitoppa sem dvaldi hátt í viku hjá okkur og við sáum líka stærri flækinga eins og Brandendur, Rauðbrystinga, Helsingja og Margæsir sem stoppa hér aðeins við í firðinum á leiðinni til Grænlands...
Sunday, April 07, 2024
Farfuglar og flækingar !
Á hverju vori mæta farfuglarnir á misjöfnum tíma og nokkrir flækingar þvælast yfirleitt með eins og vanalega. Læt hér myndir af þeim sem við höfum séð undanfarið :)
Saturday, April 06, 2024
Handklæðaskreytingarnar á rúmunum okkar !
Til gamans og til að hafa myndirnar saman á einum stað, þá set ég hér þær handklæðaskreytingar sem þrifastrákurinn setti á rúmin okkar nokkrum sinnum.
Fugla og dýralíf við hótel Sharm Reef !
Mikið var um fugla sem komu daglega að hótelinu, til að fá sér að drekka í sundlaugunum og einnig sáum við næstum daglega litlar eðlur sem skutust meðal blóma og runna í garðinum...
Krákurnar voru duglegar að mæta og betla brauð þegar við sátum úti með bita.Herfuglar voru daglega í garðinum, en voru ekki eins mannelskir og aðrir fuglar.
Kúhegrar komu daglega og stundum margir í einu, en myndina af þeim fann ég ekki.
Gráspörvar voru allsstaðar í garðinum og sífellt að fá sér sopa úr laugunum.
Dúfurnar voru líka einna fyrirferðamestar og flestar af daglegum fuglum í garðinum.
Þessi litli ránfugl sást af og til, en kom aldrei niður á laugarbakkana eins og hinir.
Litlu eðlurnar voru meira og minna á ferðinni, meira að segja sá ég eina innan dyra.
Lagt af stað í langferð með afkomendum okkar !
Það var Jóhanna okkar sem stóð fyrir því að við færum til Sharm El Sheikh í Egyptalandi í tilefni af því að ég vildi fara eitthvað með alla okkar afkomendur, en Mo gat aðeins verið með við þessar aðstæður. Fyrst ókum við 3 suður í blíðskaparveðri, viku fyrir páskavikuna og gistum 1 nótt hjá Bergþóri + co, en síðan aðra nótt í Keflavík fyrir brottförina til Osló. Þar gistum við öll 7 hjá Jóhönnu + börnum hennar í eina nótt áður en allur hópurinn 10 manns flaug til Egyptalands.
Hótel Sharm Reef, sem var snyrtilegt, góð þjónusta og fullt fæði.Tvær sundlaugar voru í hótelgarðinum og þar hægt að busla og sóla sig að vild.
Börnin voru dugleg að nota sundlaugarnar og njóta þess sem í boði var.
Við fengum sérstakt borð í hótelsalnum fyrir okkar 11 manna hóp.
Sigling á Rauðahafinu var til að geta snorkað og kafað að vild.
Allir fóru í sjóinn nema kuldaskræfan ég, sem var óvænt kvefuð.
Í Safari-ferð um eyðimörkina var gengið um krókóttan dal.
Þarna í eyðimörkinni renndum við okkur á þotum og brettum eins og í snjó.
Boðið var upp á smá útreiðartúr á úlföldum og líka ferð á fjórhjólum.
Við Rúnar hittum hinsvegar þennan úlfalda á röltinu um bæinn Sharm El Sheikh.
Á heimleiðinni var páskalambið snætt hjá Jóhönnu í Noregi, áður en haldið var heim.
Sýnishorn af vetrinum í byrjun árs 2024
Veturinn var snjóléttur framundir páska en ansi kaldur á köflum og því urðu ansi mikil svell víða á sléttlendi og mikið mál að brjóta klakann í von um að losna við kal á lóðinni okkar...