Tíðin undanfarnar 3 vikur hefur verið einstaklega góð, sól meira og minna alla daga og lítil úrkoma, enda hefur fjölgað mikið í firðinum, bæði ferðafólk í heimsókn og farfuglar fjölgað sér svo um munar.
Wednesday, July 14, 2021
Saturday, July 10, 2021
Ella og Árni í heimsókn !
Einn kemur þá annar fer segir máltækið og það hefur oft gengið eftir eins og núna, þá hittist svo vel á að Ella og Árni komu stuttu eftir að Bergþór og co fóru suður. Veðrið hélt áfram að vera einstaklega gott og við nutum þess svo sannarlega saman... röltum m.a. að skoða uppgraftarsvæðin ofan við Fjörð og við Mylluholtið. Borðuðum á Lárunni í sól og hlýju og hittum ýmsa brottflutta Seyðfirðinga og heimafólk !
Bergþór okkar og fjölskylda hans í heimsókn !
Vikuna 1.-8. júlí 2021 dvöldu Bergþór, Hildur, Nína og Þorsteinn hjá okkur. Helga mamma Hildar kom líka með þeim, en fór suður aðeins á undan þeim. Veðrið var eins gott og hugsast getur þessa daga, sól og hiti daglega og börnin nutu þess að vera frjáls og fá að sulla úti í garði í þessu góða veðri... Siggi var í vinnufríi og naut samverunnar með bróður sínum og fjölskyldu, enda alltof sjaldan sem þeir hittast núorðið...
Við fórum líka upp í Hallormsstað og víðar með þeim þessa daga og nutum veðurblíðunnar og samverunnar <3
Sunday, June 27, 2021
Harpa í heimsókn !
Daginn eftir að við komum að norðan, flaug Harpa mágkona austur og gisti hjá okkur eina viku, enda eru Atli Örn og fjölskylda stödd hér líka. Veðrið var óvenju gott og við fórum í gönguferðir og bíltúra til að nota blíðuna. Hún skrapp líka með Binnu á Norðfjörð og við Rúnar vorum dugleg við garðvinnu og þrífa gluggana að utan og fleira. Ókum henni svo í flug í morgun og bíðum eftir að Bergþór og co mæti austur til okkar eftir 3 daga....
Sunday, June 20, 2021
Húsavík heimsótt
Við Rúnar skruppum norður til Húsavíkur 16.-20. júní og Didda systir og Rúnar hennar komu líka norður. Við slógum lóðina og hreinsuðum vel og gerðum ýmislegt, þó veðrið hefði mátt vera betra. Kíktum líka í heimsóknir m.a. í afmæli Sigrúnar og til Guðnýjar Ragnars. Einnig fór ég með sumarblóm í kirkjugarðinn og við fórum öll út að gatanöf o.fl...
Slóð á gamlar Ásbyrgismyndir/þætti
https://www.ruv.is/sjonvarp/spila/gonguleidir/31656/9dskkj?fbclid=IwAR02Wv7r7yTx6Me28FJ1ybxdkqfhJ-cW8B6hje8B4GXYx9uhqBi82xFvIPE
Friday, June 04, 2021
Slóð á Sjómannadagsblöðin að sunnan !
http://sjomannadagurinn.is/sjomannadagsbladid/?utm_medium=Email&utm_source=Zenter-System&utm_campaign=%2390552+%3D%3E+Sj%C3%B3mannadagsbla%C3%B0i%C3%B0+2021&utm_content=da4bf02782a556acd50d5b1d9376a2aa5426bee6
Friday, May 28, 2021
Gömul kvikmynd frá Húsavík á þessari slóð:
https://filmcentralen.dk/museum/island-paa-film/film/husavik?fbclid=IwAR16Hwy3Dj_YmEKgBehOORzTuZJP0pRCYbrprSVRp-gBM3-4OxBU62eBX-8
Thursday, May 20, 2021
Skroppið til höfuðborgarsvæðisins !
Við ákváðum að drífa okkur suður í tæpa viku m.a. til að passa barnabörnin okkar einn daginn og úr varð að við fórum fimm saman að sjá eldgosið í Geldingadölum. Gönguleiðin var nokkuð löng og strembin á köflum, en það var fyrirhafnarinnar virði og mjög sérstakt að sjá eldgos í svona miklu návígi. Við vorum boðin í mat til Helgu Bjargar og svo í fjölskylduveislu hjá Ellu + Árna. Við ókum norðurleiðina suður (og gistum á Húsavík) en fórum suðurleiðina heim og sáum þá gæf hreindýr, fleiri hundruð Helsingja við Jökulsárlónið og síðast en ekki síst, mórauða tófu á veginum nærri Höfn.
Sunday, May 16, 2021
Slóð á fallegt ljóð tengt Víkingavatni !
https://www.ahb.is/throsturinn-syngur/?fbclid=IwAR1WoB4rvzXtWO0TF7Lo6I3SYzHVc3D-v014f3R__VgNYGftHlpMLmz7szY
Thursday, April 15, 2021
Slóð á enska fuglasíðu !
https://avibase.bsc-eoc.org/species.jsp?lang=IS&avibaseid=E16B2C0328E05DC5&fbclid=IwAR0kJZkh8LxRZI3mO1cdGD21jqmbLI-ihJKor9sMVwO43ubF6OSeMXf2x4Q
https://flickr.com/photos/56541100@N00/with/2207512508/
Saturday, April 10, 2021
Slóð á ferðasöguna okkar til Egyptalands 2006
http://www.640.is/is/frettir/ferd-til-egyptalands-i-mars-2006
Sunday, April 04, 2021
Netmessan okkar !
Þar sem ekki mátti halda páskamessur, varð ofaná að taka upp kórsöng og senda út netmessu heldur en ekkert og slóðin sett inn á Sf-vefina. Ég eins og fleiri hlustaði auðvitað og tók minningamyndir og rak þá augun í það að enn og aftur virðist ég ósýnileg í sumum hópum, sú eina sem ekki er nafngreind ?
Páskar á Covid tímum !
Þar sem Covid veiran hefur enn heljartök á mannkyninu og þrátt fyrir góðan vilja til að vernda Ísland með takmörkuðum aðgangi að landinu, þá slæddust smitaðir einstaklingar til landsins og dreifðu veirunni, svo bannað var að halda veislur, fermingar og messur um páskana og veðráttan var í stíl við þetta allt, hljóp úr sól og 15 stiga hita í mismikið frost, hríð og hvassviðri. Grágæsir, Tjaldar og Skógarþrestir eru komnir auk flækinganna sem áður voru komnir með djúpum lægðum frá Evrópu. Þeir eiga miserfitt í þessari ótíð og við reynum að bjarga því með matargjöfum sem vonandi duga þeim flestum.... Á páskadag mætti háhyrningur í fjörðinn, trúlega að elta bráð í sjónum....?
Wednesday, March 31, 2021
Flækingsfuglar í heimsókn !
Djúpar lægðir hafa fært okkur heilmikið af flækingsfuglum til landsins. Til Seyðisfjarðar hafa komið nokkuð margir svartþrestir og gráþrestir, einnig stök Vepja sem við sáum daglega í ca. viku, en þá helltist yfir 2 daga hríðartími og eftir það höfum við ekki séð hana. En Glóbrystingurinn litli sem birtist hér í byrjun desember hefur verið hér í allan vetur og þó hann hafi ekki séðst dag og dag, þá birtist hann alltaf á ný og gleður okkur með nærveru sinni. Tjaldurinn mætti á svipuðum tíma og vanalega og ein grágæs, en aðrir farfuglar eru ekki mættir hingað, nema e.t.v. slatti af skógarþröstum sem birtust seint í mars... Vetrarfuglalífið hefur verið svipað og undanfarin ár...!
Varnargarðar og veðráttan undanfarið !
Eftir aurskriðurnar hófst mikið hreinsunarstarf og voru gerðir heilmiklir varnargarðar ofan við byggðina að sunnanverðu, sem vonandi gera það gagn sem þarf um komandi ár. Veðráttan hefur verið skrítin eins og oft áður, ýmist hlýir dagar, svo allt varð autt og brum birtist á gróðrinum, en oftar mismikil frost með mismiklum snjó og ófærð...
Sunday, March 07, 2021
Sunday, February 28, 2021
Endalaust rusl eftir aurskriðurnar 18. des. 2020.
Við höfum haft nóg að gera alla góðviðrisdaga, að safna saman rusli í fjörunum. Höfum staflað spítnarusli í hrúgur þar sem hægt er að komast með bíla + kerrur, en smárusl hef ég tínt í ruslapoka... Boggi og Gunnar Sverris hafa verið duglegir við þetta hreinsunarstarf ásamt fleirum...
Slóð á stuttar frásagnir RAX ljósmyndara
https://www.visir.is/g/20212078330d/rax-augnablik-thad-hvarfladi-ekki-ad-mer-ad-hann-vaeri-enn-a-lifi-?fbclid=IwAR0ogpULl2mNP9GMuQxzbZCuLOFpZ2WF1OTnoRoO_q6KrciyauD4H-N8I7U
Sunday, February 21, 2021
Fjörurnar fullar af skriðu-rusli !
Eftir aurskriðurnar miklu 18. desember s.l. hefur alls konar rusl flotið upp í fjörurnar hér í firðinum. Við erum búin að fara nokkrum sinnum og tína saman plast, timbur og annað rusl sem við ráðum við, m.a.s. líka járnplötur og safna því saman í hrúgur. Borgþór Jóhanns hefur líka verið einna duglegastur við að safna rusli saman og fjarlægja það, en mikið starf er samt eftir, því ekki er fært ennþá víða um fjörur og bíður því sumt af ruslinu, sérstaklega stærra og þyngra dót eftir vorinu eða að snjóa leysi. Læt hér sýnishorn af rusli og ruslapokum sem við hentum á gámasvæðið...
Saturday, February 13, 2021
Ljós í myrkrinu / eða / List í ljósi 😄
Mörg undanfarin ár hefur LungA skólinn staðið fyrir ljósahátíð um miðjan febrúar rétt áður en sólin fer aftur að sjást í bænum um 20. febrúar. Það er alltaf gaman að sjá hugmyndaflugið sem birtist í verkunum hverju sinni og heilmikil vinna á bakvið þetta, en þemað að þessu sinni var um Aurskriðurnar og afleiðingar þeirra. Nokkrar myndir sýna fáein verkanna 👪
Silfurhöllin sem hvarf í aurskriðurnar !
Hreinsunarstarfið eftir aurskriðurnar !
Mikið hreinsunarstarf hefur nú verið unnið og meira þarf að vinna til viðbótar í bænum eftir aurskriðurnar. Mikið af munum úr horfnu húsunum hefur fundist í leðjunni og verið safnað saman til hreinsunar og skoðunar, því sumt er heilt en annað ónýtt. Fagfólk þarf meira og minna til að meta það og hreinsa munina. Nokkur hús hafa verið úrskurðuð óhæf til að búa í þeim, eins og Garður og Landamót. Búið er að byggja varnargarða fyrir ofan hluta af byggðinni sem er í mestri hættu og allt gert til að tryggja sem mest öryggi og leysa vanda fólks sem býr á verstu svæðunum...






