Friday, June 04, 2021

Slóð á Sjómannadagsblöðin að sunnan !

 http://sjomannadagurinn.is/sjomannadagsbladid/?utm_medium=Email&utm_source=Zenter-System&utm_campaign=%2390552+%3D%3E+Sj%C3%B3mannadagsbla%C3%B0i%C3%B0+2021&utm_content=da4bf02782a556acd50d5b1d9376a2aa5426bee6

Friday, May 28, 2021

Gömul kvikmynd frá Húsavík á þessari slóð:

 https://filmcentralen.dk/museum/island-paa-film/film/husavik?fbclid=IwAR16Hwy3Dj_YmEKgBehOORzTuZJP0pRCYbrprSVRp-gBM3-4OxBU62eBX-8

Thursday, May 20, 2021

Skroppið til höfuðborgarsvæðisins !

 Við ákváðum að drífa okkur suður í tæpa viku m.a. til að passa barnabörnin okkar einn daginn og úr varð að við fórum fimm saman að sjá eldgosið í Geldingadölum. Gönguleiðin var nokkuð löng og strembin á köflum, en það var fyrirhafnarinnar virði og mjög sérstakt að sjá eldgos í svona miklu návígi. Við vorum boðin í mat til Helgu Bjargar og svo í fjölskylduveislu hjá Ellu + Árna. Við ókum norðurleiðina suður (og gistum á Húsavík) en fórum suðurleiðina heim og sáum þá gæf hreindýr, fleiri hundruð Helsingja við Jökulsárlónið og síðast en ekki síst, mórauða tófu á veginum nærri Höfn.






Sunday, May 16, 2021

Slóð á fallegt ljóð tengt Víkingavatni !

 https://www.ahb.is/throsturinn-syngur/?fbclid=IwAR1WoB4rvzXtWO0TF7Lo6I3SYzHVc3D-v014f3R__VgNYGftHlpMLmz7szY

Thursday, April 15, 2021

Slóð á enska fuglasíðu !

https://avibase.bsc-eoc.org/species.jsp?lang=IS&avibaseid=E16B2C0328E05DC5&fbclid=IwAR0kJZkh8LxRZI3mO1cdGD21jqmbLI-ihJKor9sMVwO43ubF6OSeMXf2x4Q

https://flickr.com/photos/56541100@N00/with/2207512508/

Sunday, April 04, 2021

Netmessan okkar !

 Þar sem ekki mátti halda páskamessur, varð ofaná að taka upp kórsöng og senda út netmessu heldur en ekkert og slóðin sett inn á Sf-vefina. Ég eins og fleiri hlustaði auðvitað og tók minningamyndir og rak þá augun í það að enn og aftur virðist ég ósýnileg í sumum hópum, sú eina sem ekki er nafngreind ?







Páskar á Covid tímum !

 Þar sem Covid veiran hefur enn heljartök á mannkyninu og þrátt fyrir góðan vilja til að vernda Ísland með takmörkuðum aðgangi að landinu, þá slæddust smitaðir einstaklingar til landsins og dreifðu veirunni, svo bannað var að halda veislur, fermingar og messur um páskana og veðráttan var í stíl við þetta allt, hljóp úr sól og 15 stiga hita í mismikið frost, hríð og hvassviðri. Grágæsir, Tjaldar og Skógarþrestir eru komnir auk flækinganna sem áður voru komnir með djúpum lægðum frá Evrópu. Þeir eiga miserfitt í þessari ótíð og við reynum að bjarga því með matargjöfum sem vonandi duga þeim flestum....  Á páskadag mætti háhyrningur í fjörðinn, trúlega að elta bráð í sjónum....?







Wednesday, March 31, 2021

Flækingsfuglar í heimsókn !

 Djúpar lægðir hafa fært okkur heilmikið af flækingsfuglum til landsins.  Til Seyðisfjarðar hafa komið nokkuð margir svartþrestir og gráþrestir, einnig stök Vepja sem við sáum daglega í ca. viku, en þá helltist yfir 2 daga hríðartími og eftir það höfum við ekki séð hana.  En Glóbrystingurinn litli sem birtist hér í byrjun desember hefur verið hér í allan vetur og þó hann hafi ekki séðst dag og dag, þá birtist hann alltaf á ný og gleður okkur með nærveru sinni. Tjaldurinn mætti á svipuðum tíma og vanalega og ein grágæs, en aðrir farfuglar eru ekki mættir hingað, nema e.t.v. slatti af skógarþröstum sem birtust seint í mars...  Vetrarfuglalífið hefur verið svipað og undanfarin ár...!






Varnargarðar og veðráttan undanfarið !

 Eftir aurskriðurnar hófst mikið hreinsunarstarf og voru gerðir heilmiklir varnargarðar ofan við byggðina að sunnanverðu, sem vonandi gera það gagn sem þarf um komandi ár.  Veðráttan hefur verið skrítin eins og oft áður,  ýmist hlýir dagar, svo allt varð autt og brum birtist á gróðrinum, en oftar mismikil frost með mismiklum snjó og ófærð...





Slóð á fuglamyndasíðu Boga Þórs

 https://bogiara.com/nyjast/

Sunday, February 28, 2021

Endalaust rusl eftir aurskriðurnar 18. des. 2020.

 Við höfum haft nóg að gera alla góðviðrisdaga, að safna saman rusli í fjörunum. Höfum staflað spítnarusli í hrúgur þar sem hægt er að komast með bíla + kerrur, en smárusl hef ég tínt í ruslapoka...                   Boggi og Gunnar Sverris hafa verið duglegir við þetta hreinsunarstarf ásamt fleirum...







Slóð á stuttar frásagnir RAX ljósmyndara

 https://www.visir.is/g/20212078330d/rax-augnablik-thad-hvarfladi-ekki-ad-mer-ad-hann-vaeri-enn-a-lifi-?fbclid=IwAR0ogpULl2mNP9GMuQxzbZCuLOFpZ2WF1OTnoRoO_q6KrciyauD4H-N8I7U

Sunday, February 21, 2021

Fjörurnar fullar af skriðu-rusli !

 Eftir aurskriðurnar miklu 18. desember s.l. hefur alls konar rusl flotið upp í fjörurnar hér í firðinum. Við erum búin að fara nokkrum sinnum og tína saman plast, timbur og annað rusl sem við ráðum við, m.a.s. líka járnplötur og safna því saman í hrúgur. Borgþór Jóhanns hefur líka verið einna duglegastur við að safna rusli saman og fjarlægja það, en mikið starf er samt eftir, því ekki er fært ennþá víða um fjörur og bíður því sumt af ruslinu, sérstaklega stærra og þyngra dót eftir vorinu eða að snjóa leysi.  Læt hér sýnishorn af rusli og ruslapokum sem við hentum á gámasvæðið...




Saturday, February 13, 2021

Ljós í myrkrinu / eða / List í ljósi 😄

Mörg undanfarin ár hefur LungA skólinn staðið fyrir ljósahátíð um miðjan febrúar rétt áður en sólin fer aftur að sjást í bænum um 20. febrúar. Það er alltaf gaman að sjá hugmyndaflugið sem birtist í verkunum hverju sinni og heilmikil vinna á bakvið þetta, en þemað að þessu sinni var um Aurskriðurnar og afleiðingar þeirra.   Nokkrar myndir sýna fáein verkanna 👪



                                              Silfurhöllin sem hvarf í aurskriðurnar !



Hreinsunarstarfið eftir aurskriðurnar !

 Mikið hreinsunarstarf hefur nú verið unnið og meira þarf að vinna til viðbótar í bænum eftir aurskriðurnar. Mikið af munum úr horfnu húsunum hefur fundist í leðjunni og verið safnað saman til hreinsunar og skoðunar, því sumt er heilt en annað ónýtt. Fagfólk þarf meira og minna til að meta það og hreinsa munina. Nokkur hús hafa verið úrskurðuð óhæf til að búa í þeim, eins og Garður og Landamót. Búið er að byggja varnargarða fyrir ofan hluta af byggðinni sem er í mestri hættu og allt gert til að tryggja sem mest öryggi og leysa vanda fólks sem býr á verstu svæðunum...






Nýja árið 2021

 Nýja árið hófst nú ekki beint vel, því veðrið hefur sveiflast til og frá með stórhríðum og ófærð og roki og frosti, en hefði líka getað verið verra, því víða urðu skemmdir um landið, en Seyðfirðingar sluppu þokkalega frá þessu veðri, þó bátar, bílrúður og fleira hafi brotnað 😃 





Friday, January 22, 2021

Jól og áramót !

 Þetta Covid ár er búið að vera erfitt fyrir jarðarbúa og þó við séum einangruð hér og laus við smit og veikindi, þá verðum við að hlýða öllum reglum, með grímur + sóttvarnir og fjarlægðir við fólk. Jólahátíðin var því fámenn að þessu sinni og ekki allir bæjarbúar komnir heim til sín eftir skriðurnar. Engar messur voru um jólin og engin kaffiboð. En á gamlaárskvöld var ákveðið að allir slepptu kaupum á flugeldum, en keyptu í staðinn friðarkerti af Björgunarsveitinni og mættu með þau niður að Lóninu og loguðu þau þar í kring alla nóttina. Þetta var mikið fallegra en rakettur og allir virtust ánægðir og sáttir með friðinn og hreina loftið, enda veðrið eins og best var á kosið...





Monday, December 21, 2020

Aurskriður og eyðilegging !

 Um miðjan desember fór að rigna óeðlilega mikið, sólarhringum saman og nokkrar aurskriður fóru að renna niður að bænum. Það gerðist síðan eftir mikið úrhelli, að föstudaginn 18. des. hrundi gríðarstór aurskriða niður yfir Búðareyrina og eyðilagði meira en 10 hús, þar á meðal stóran hluta af smiðjuhúsunum og Turninn, auk nokkurra íbúðarhúsa í nágrenninu. Það kraftaverk varð að allir lifðu af þessar hörmungar, en allir íbúar bæjarins voru sama dag reknir úr bænum og fengu flestir samastað á Egilsstöðum og nágrenni. Við sem búum á öruggum svæðum í bænum fengum að fara heim eftir 2 sólarhringa en aðrir fengu að sækja það sem þá nauðsynlega vantaði og bíða eftir leyfi að fara heim.    En framundan verður mikið og erfitt hreinsunarstarf og uppbygging, sem vonandi gengur að óskum !