https://www.ruv.is/utvarp/spila/frjalsar-hendur/23806/7i50v4
Monday, February 20, 2023
Tuesday, February 14, 2023
Tuesday, February 07, 2023
Slóð á grein eftir Jón B. G. með vísum eftir Jón Trausta !
https://timarit.is/page/3305186#page/n3/mode/2up
Friday, February 03, 2023
Facebook með furðuleg leiðindi !!!
Facebook útilokaði mig alveg í 3 sólarhringa, en síðan fékk ég að skoða vefinn, en get ekkert gert næstu 3 sólarhringa, hvorki sett in myndir, skrifað staf og ekki einu sinni "lækað" á eitt né neitt.
Þetta kalla þeir refsingu fyrir að setja eitthvað inn sem ekki samræmist þeirra reglum, en það eru víst klámfengnar myndir (ef ég skil þá rétt) en slíkar myndir hef ég aldrei sett inn og á heldur engar slíkar.
Það er reyndar tekið fram að einhver annar gæti hafa deilt einhverju á minn vegg, sem ég hef bara ekki séð og veit ekkert um og finnst óréttlátt að vera refsað fyrir eitthvað sem einhver annar gæti hafa gert, því ekki kannast ég við að eiga sök á neinu slíku.
Mér er skapi næst að yfirgefa svæðið, þó það kosti það að missa visst samband við ættingja og vini 😢
Monday, January 30, 2023
Slóð á bréf og ýmislegt um Theodór afa og Guðmund refaskyttu á Brekku !
http://www.refaskyttan.net/category/theodor/
Friday, January 27, 2023
Hreindýr og rjúpur niður í bæ !
Það hefur oft gerst í snjóþungum vetrum að bæði hreindýr og rjúpur hafi komið niður í bæ í leit að æti. Undanfarið hafa hreindýrin haldið til hér í við bæinn og rjúpur hafa séðst hér víða í runnum, enda er þykkur snjór yfir öllu og lítið um æti fyrir þessi dýr, nema helst hér niður á láglendinu.
Vetur í bæ og Þorrablót !
Það hefur verið óvenju risjótt veður eftir áramótin og hitinn hoppað óvenju mikið upp og niður. Ég hef þrjóskast við að moka snjó og fóðra fuglana eftir þörfum og Rúnar snúist við ýmislegt, enda alltaf einhver verkefni sem okkur berast úr ýmsum áttum, eins og beiðnir um ljósmyndir sem notaðar hafa verið jafnt í sjónvarpinu og í bókum, tímaritum og fleira. Svo fórum við á Þorrablót sem reyndist býsna gott, en það gleymdist að taka myndir nema þessa einu sem hér fylgir með. Að síðustu má geta þess, að á góðviðris- dögum hefur verið óvenju mikið af glitskýjum hér á himni eins og víðar um landið...
Ríkey Ásta og hennar sambýlismaður.Glitskýin sem glatt hafa okkur í janúar.
Snjórinn sem allt setti á kaf um tíma...
Það þurfti heilmikið að moka snjó um tíma !
Saturday, January 14, 2023
Hilla frænka látin !
Hilla móðursystir mín lést á Húsavík á nýársdag og var jarðsett föstudaginn 13. janúar. Veður var gott og fært norður, þannig að við ákváðum að skella okkur af stað kvöldið 12. jan og gekk ferðin vel. Við þurftum hinsvegar að moka okkur inn í Hlíð, því tröppurnar voru yfirfullar af klaka og snjó sem hafði hrunið af þakinu ofan á þær. Okkur tókst að hreinsa þær og notuðum tímann til að gera ýmislegt áður en við mættum í útförina og í kirkjugarðinn. Ég tók myndir með leyfi frá Sidda frænda. Loks fórum við í kaffi í Hlyn og hittum þar marga og mikið spjallað. En loks af stað aftur austur síðdegis, því enn var fært og veður skaplegt, svo allt gekk vel og heim komum við um kl 20 á föstudagskvöldinu.
Þess má geta að Gurrý fékk blóðtappa og lenti til Akureyrar þess vegna og Svenni sagði okkur að Guðný Anna hefði líka fengið blóðtappa nýlega, svo þær frænkur eru báðar á síðasta snúningi, því miður ❤
Eldhúsið tekið í gegn !
Skömmu áður en Siggi Birkir flaug til Tenerife með vinnufélögum hans, þá ákváðum við að taka eldhúsið í gegn, því bekkplöturnar voru orðnar ljótar og illa farnar. Rúnar pússaði þær vel og vandlega og bar svo 3 umferðir á þær á meðan við vorum bara tvö heima. Ég sá hinsvegar um að gera allt klárt og tæma allt dót af borðum og bekkjum og síðan að þrífa allt vel og setja upp hreinar gardínur og ganga frá. Þetta kláraðist áður en Siggi kom heim 💗
Mikill snjór á suðvesturlandi !
Við yfirgáfum Reykjavík og nágrenni sólarhring áður en við þurftum að skila íbúðinni, því veður var gott og spáin góð fyrir daginn, enda gekk ferðin austur eins og í sögu, þó það væri ansi mikill snjór alla leið að sunnan og langleiðina í öræfin, en þar var snjólítið og víða næstum autt, sem betur fer. Ég leysti Rúnar af um tíma, svo hann gæti hvílt sig og sofnað, enda leiðin alltof löng til að aka hana einn alla leið. Hvar sem maður stoppar til að næra sig á leiðinni þar er/var ótrúlega mikið af ferðafólki (mest Asíufólk) og ekkert nema erlend tungumál, hvert sem farið er og skiptir ekki máli hvort það er vetur eða sumar !
Skógarfoss var umvafinn snjó og klaka, en slíkt höfum við aldrei séð fyrr !Suðurlandið var allt þakið snjó og klaka og hálka á köflum.
Suðausturhorn landsins var hinsvegar snjólétt og nokkur hreindýr þar á ferð.
Friday, December 30, 2022
Afmæliskvöldverður með ættingjum Rúnars !
Rúnar ákvað að kaupa smáréttahlaðborð hjá Jóa fjörugoða frænda sínum, til að bjóða ættingjum sínum í tilefni af 70 ára afmælinu. Það gekk furðu vel og allir sem mættu virtust hafa gaman af því og færðu Rúnari ýmsar gjafir, þó þær hafi verið fyrirfram afþakkaðar. Alls voru þarna háttí 40 manns með börnum og að því loknu fórum við heim með systkinum Rúnars og mökum og Bogi Ara kom líka og sátum á spjalli til miðnættis í góðum gír :)
Wednesday, December 28, 2022
Jólin sunnan heiða !
Ferðin okkar suður gekk vel, þó hún tæki 9-10 tíma akstur. Veðrið syðra var hinsvegar lítið betra yfir hátíðirnar, þó ekki hafi orðið ófært á milli staða á höfuðborgarsvæðinu. Við borðuðum öll saman hjá Bergþóri og co á aðfangadagskvöld, en hjá okkur í Mánatúni 3 á jóladag. Strákarnir voru duglegir að spila en við Jóhanna pússluðum eitt 1000 kubba pússl. Við skruppum í Hafnarfjörð og röltum um Hellisgerði og ókum út á Álftanes og fleira. Rut Finnsd kom í heimsókn með maka og 2 börn og við röltum líka um nágrennið þegar viðraði til útiveru, sem var flesta dagana.
Monday, December 19, 2022
Slóð á ferð okkar til Egyptalands 2006.
https://www.640.is/is/frettir/ferd-til-egyptalands-i-mars-2006?fbclid=IwAR1PtIG54WfcLaS65TPKG70j_W3YdxSZcneYr0v9mec03z2SfsE4DyqzRO4
Jólin nálgast og veturinn tekur völdin !
Haustið var nokkuð gott hér eystra og ég tók ekki síðustu gulræturnar upp fyrr en í byrjun desember. En svo mætti veturinn skyndilega og þá fór að frysta og snjóa og lítið lát hefur verið á því siðustu vikur. Samt erum við að vonast til að geta ekið suður eftir 3 sólarhringa, þó mesta ófærðin sé suðvestanlands í bili. Læt nokkrar myndir fljóta með sem sýna stöðuna eins og hún hefur verið undanfarið.
Kuldinn á Fjarðarheiði 16. des. 2022...Síðasta ferð Norrænu til Sfk þetta árið :)
30 ár liðin frá láti Eiríks tengdapabba <3
Thursday, December 15, 2022
Flækingar og jólasnjór !
Nú þegar desember er hálfnaður er veturinn loksins kominn með snjó og frosti og þá birtust loks nokkrir svangir flækingsfuglar sem fengu epli og fleira í gogginn. Dúfurnar halda áfram að valda vandræðum, því þegar litlu snjótittlingarnir mættu, þá var eina leiðin til að fóðra þá, að setja upp "búrið" sem við höfum sett upp s.l. vetur til að koma í veg fyrir að dúfurnar ætu allt frá þeim. Við vitum að svartþrestir eru hér nokkrir af báðum kynjum og einn glóbrystingur og fleiri litir smáfuglar, sem gætu verið gransöngvarar ? En ekki hefur tekið að mynda þá litlu, því miður !
Friday, December 02, 2022
Rúnar minn 70 ára !
Þann 1. desember 2022 varð Rúnar minn 70 ára ! Mamma hans sagði mér eitt sinn, að þegar hún gekk með hann, þá hefði hún hrasað illa skömmu áður en hann fæddist og það virtist hafa sett fæðingu hans af stað fyrir tímann. En mig minnir að hún segði að hann hefði ekki átt að fæðast fyrr en mánuði síðar ? Ekki man ég samt hve þungur hann var við fæðingu, en hann hefur allavega haldið sér vel þessi 70 ár.
Afmælismaturinn var hangikjöt og meðlæti að ósk Rúnars !Þennan fallega vönd fékk Rúnar frá Mikka Jóns !
Saturday, November 26, 2022
Jólalaufabrauðið tilbúið !
Það er fastur liður hjá okkur að steikja laufabrauð í nóvember, enda er það í miklu uppáhaldi hjá öllum í okkar fjölskyldu. Við drifum í því að skreyta og steikja 40 kökur sem bíða jólanna og stór hluti þeirra fer með okkur suður til að nota með afkomendum okkar sem ætla öll að mæta og vera saman um jólin !
Fyrstu flækingarnir mættir !
Á hverju hausti hafa mætt hingað ýmsir flækingsfuglar, mismargir og ólíkir, en oftar en ekki hafa mætt hingað gráhegarar sem hafa dvalið hér lengur eða skemur. Svartþrestir og gráþrestir hafa verið hér meira og minna allan veturinn og jafnvel litlu flækingarnir eins og hettusöngvarar og glóbrystingar. En að þessu sinni höfum við aðeins séð einn gráhegra og 3 svartþresti, einnig lítinn fugl sem líklega er gransöngvari? En þeir litlu hafa ekki gefið færi á myndatöku enn sem komið er, aðeins gráhegrinn sem við höfum séð 2 sinnum við höfnina !
Wednesday, November 16, 2022
Haustverkin í garðinum og vetrarblómin innandyra !
Síðustu haustverkin í garðinum og blómin sem blómstra á veturnar ! Eftir að við komum heim frá Namibíu, dreif ég í að taka upp meiripartinn af gulrótunum sem orðnar voru nógu stórar og síðan að vefja litlu, nýju trjáplönturnar, gullregnið o.fl. ásamt stóru Lyngrósinni í vetrarklæði til varnar frosti, snjó og kulda. Það gekk allt saman vel.
Svo eru það blessuð inniblómin sem blómstra á veturnar, eins og Nóvember-og-jólakaktusar, sem eru núna allir að fara að springa út. Einnig 2 af orkideunum, en sú þriðja er nýbúin að blómstra mér til mestu ánægju að vanda 💗
Stór hluti gulrótanna voru í meðallagi eða meira !Sætu paprikurnar eru komnar í notkun og eru góðar.
Orkideurnar eru að hamast við að mynda blómleggi.
Kaktusarnir eru farnir að springa út !
Sunday, November 13, 2022
Maturinn í Namibíu !
Það verður að segjast að nánast allur sá matur sem við fengum í Namibíu var mjög góður og svo ríflega skammtaður að ekki var nokkur leið fyrir mig að klára svo stóra skammta. En sem betur fer gistum við stundum á stöðum sem buðu uppá hlaðborð og var það mikill munur, því þá þurfti maður aldrei að leyfa því sem maður gat ekki torgað ! Hér koma svo sýnishorn af krásunum 😂
Okkur fannst þessi eftirrétta-skreyting skemmtileg.








