Saturday, April 15, 2023

Farfuglar og FLÆKINGAR streyma nú til landsins !

 Undanfarnar vikur hafa streymt bæði flækingar og farfuglar til landsins og við höfum fengið óvenju marga flækingsfugla í heimsókn og ætla ég að setja hér myndir af þeim helstu 💗 Ég hef svo oft sett hér inn myndir af Svartþröstum, gráþröstum og fleiri flækingum, svo ég læt þessa nægja að sinni...

                                                Hringdúfa er reyndar árlegur flækingur hér !
                                            Landsvölu höfum við örsjaldan séð hér áður...
                                            2 Glóbrystingar mættu að þessu sinni til okkar...
                                            Bókfinku höfum við sjaldan séð hér áður !
                                             Keldusvín er alveg nýr flækingur hjá okkur <3
                                             Sefhæna er líka alveg nýr gestur og mjög spes !

Monday, March 13, 2023

Tvær norðurferðir vegna jarðarfara !

 Halldóra Theodórsd. móðursystir mín lést snögglega á nýársdag 2023 og var jarðsett 13. janúar. Við vorum svo heppin að geta rennt norður að útförinni, því veður og færð var með besta móti miðað við árstíma. Á sama tíma var sú dapurlega frétt orðin staðreynd, að Gurrý dóttir hennar væri alvarlega veik af krabbameini og ekkert hægt að gera henni til hjálpar. Því miður gat hún ekki verið viðstödd útför móður sinnar, því hún lenti óvænt inn á Akureyrarspítala með blóðtappa. Það leið síðan aðeins rúmur mánuður þar til hún lést, þann 22. febr. á 90 ára fæðingardegi Alla pabba hennar. Útför hennar fór síðan fram 3. mars á fæðingardegi Guðrúnar ömmu okkar og nöfnu hennar. Við vorum aftur heppin og gátum skroppið norður að útför hennar, þó erfitt sé alltaf að upplifa slíkar kveðjustundir. Ég var sú eina af mínu fólki sem gat farið norður í bæði skiptin ❤





Friday, February 03, 2023

Facebook með furðuleg leiðindi !!!

 Facebook útilokaði mig alveg í 3 sólarhringa, en síðan fékk ég að skoða vefinn, en get ekkert gert næstu 3 sólarhringa, hvorki sett in myndir, skrifað staf og ekki einu sinni "lækað" á eitt né neitt.

Þetta kalla þeir refsingu fyrir að setja eitthvað inn sem ekki samræmist þeirra reglum, en það eru víst klámfengnar myndir (ef ég skil þá rétt) en slíkar myndir hef ég aldrei sett inn og á heldur engar slíkar. 

Það er reyndar tekið fram að einhver annar gæti hafa deilt einhverju á minn vegg, sem ég hef bara ekki séð og veit ekkert um og finnst óréttlátt að vera refsað fyrir eitthvað sem einhver annar gæti hafa gert, því ekki kannast ég við að eiga sök á neinu slíku.

Mér er skapi næst að yfirgefa svæðið, þó það kosti það að missa visst samband við ættingja og vini 😢


Friday, January 27, 2023

Hreindýr og rjúpur niður í bæ !

 Það hefur oft gerst í snjóþungum vetrum að bæði hreindýr og rjúpur hafi komið niður í bæ í leit að æti. Undanfarið hafa hreindýrin haldið til hér í við bæinn og rjúpur hafa séðst hér víða í runnum, enda er þykkur snjór yfir öllu og lítið um æti fyrir þessi dýr, nema helst hér niður á láglendinu.





Vetur í bæ og Þorrablót !

 Það hefur verið óvenju risjótt veður eftir áramótin og hitinn hoppað óvenju mikið upp og niður. Ég hef þrjóskast við að moka snjó og fóðra fuglana eftir þörfum og Rúnar snúist við ýmislegt, enda alltaf einhver verkefni sem okkur berast úr ýmsum áttum, eins og beiðnir um ljósmyndir sem notaðar hafa verið jafnt í sjónvarpinu og í bókum, tímaritum og fleira. Svo fórum við á Þorrablót sem reyndist býsna gott, en það gleymdist að taka myndir nema þessa einu sem hér fylgir með.  Að síðustu má geta þess, að á góðviðris- dögum hefur verið óvenju mikið af glitskýjum hér á himni eins og víðar um landið...

                                                Ríkey Ásta og hennar sambýlismaður.
                                              Glitskýin sem glatt hafa okkur í janúar.
                                                  Snjórinn sem allt setti á kaf um tíma...
                                             Það þurfti heilmikið að moka snjó um tíma !

                                                

Saturday, January 14, 2023

Hilla frænka látin !

 Hilla móðursystir mín lést á Húsavík á nýársdag og var jarðsett föstudaginn 13. janúar. Veður var gott og fært norður, þannig að við ákváðum að skella okkur af stað kvöldið 12. jan og gekk ferðin vel. Við þurftum hinsvegar að moka okkur inn í Hlíð, því tröppurnar voru yfirfullar af klaka og snjó sem hafði hrunið af þakinu ofan á þær. Okkur tókst að hreinsa þær og notuðum tímann til að gera ýmislegt áður en við mættum í útförina og í kirkjugarðinn. Ég tók myndir með leyfi frá Sidda frænda. Loks fórum við í kaffi í Hlyn og hittum þar marga og mikið spjallað. En loks af stað aftur austur síðdegis, því enn var fært og veður skaplegt, svo allt gekk vel og heim komum við um kl 20 á föstudagskvöldinu.

Þess má geta að Gurrý fékk blóðtappa og lenti til Akureyrar þess vegna og Svenni sagði okkur að Guðný Anna hefði líka fengið blóðtappa nýlega, svo þær frænkur eru báðar á síðasta snúningi, því miður ❤





Eldhúsið tekið í gegn !

 Skömmu áður en Siggi Birkir flaug til Tenerife með vinnufélögum hans, þá ákváðum við að taka eldhúsið í gegn, því bekkplöturnar voru orðnar ljótar og illa farnar. Rúnar pússaði þær vel og vandlega og bar svo 3 umferðir á þær á meðan við vorum bara tvö heima. Ég sá hinsvegar um að gera allt klárt og tæma allt dót af borðum og bekkjum og síðan að þrífa allt vel og setja upp hreinar gardínur og ganga frá. Þetta kláraðist áður en Siggi kom heim 💗




Mikill snjór á suðvesturlandi !

 Við yfirgáfum Reykjavík og nágrenni sólarhring áður en við þurftum að skila íbúðinni, því veður var gott og spáin góð fyrir daginn, enda gekk ferðin austur eins og í sögu, þó það væri ansi mikill snjór alla leið að sunnan og langleiðina í öræfin, en þar var snjólítið og víða næstum autt, sem betur fer. Ég leysti Rúnar af um tíma, svo hann gæti hvílt sig og sofnað, enda leiðin alltof löng til að aka hana einn alla leið.  Hvar sem maður stoppar til að næra sig á leiðinni þar er/var ótrúlega mikið af ferðafólki (mest Asíufólk) og ekkert nema erlend tungumál, hvert sem farið er og skiptir ekki máli hvort það er vetur eða sumar !

                     Skógarfoss var umvafinn snjó og klaka, en slíkt höfum við aldrei séð fyrr !
                                    Suðurlandið var allt þakið snjó og klaka og hálka á köflum.
                        Suðausturhorn landsins var hinsvegar snjólétt og nokkur hreindýr þar á ferð.


Friday, December 30, 2022

Afmæliskvöldverður með ættingjum Rúnars !

 Rúnar ákvað að kaupa smáréttahlaðborð hjá Jóa fjörugoða frænda sínum, til að bjóða ættingjum sínum í tilefni af 70 ára afmælinu. Það gekk furðu vel og allir sem mættu virtust hafa gaman af því og færðu Rúnari ýmsar gjafir, þó þær hafi verið fyrirfram afþakkaðar. Alls voru þarna háttí 40 manns með börnum og að því loknu fórum við heim með systkinum Rúnars og mökum og Bogi Ara kom líka og sátum á spjalli til miðnættis í góðum gír :) 




Wednesday, December 28, 2022

Jólin sunnan heiða !

 Ferðin okkar suður gekk vel, þó hún tæki 9-10 tíma akstur. Veðrið syðra var hinsvegar lítið betra yfir hátíðirnar, þó ekki hafi orðið ófært á milli staða á höfuðborgarsvæðinu. Við borðuðum öll saman hjá Bergþóri og co á aðfangadagskvöld, en hjá okkur í Mánatúni 3 á jóladag. Strákarnir voru duglegir að spila en við Jóhanna pússluðum eitt 1000 kubba pússl. Við skruppum í Hafnarfjörð og röltum um Hellisgerði og ókum út á Álftanes og fleira. Rut Finnsd kom í heimsókn með maka og 2 börn og við röltum líka um nágrennið þegar viðraði til útiveru, sem var flesta dagana.








Monday, December 19, 2022

Slóð á ferð okkar til Egyptalands 2006.

 https://www.640.is/is/frettir/ferd-til-egyptalands-i-mars-2006?fbclid=IwAR1PtIG54WfcLaS65TPKG70j_W3YdxSZcneYr0v9mec03z2SfsE4DyqzRO4

Jólin nálgast og veturinn tekur völdin !

 Haustið var nokkuð gott hér eystra og ég tók ekki síðustu gulræturnar upp fyrr en í byrjun desember. En svo mætti veturinn skyndilega og þá fór að frysta og snjóa og lítið lát hefur verið á því siðustu vikur. Samt erum við að vonast til að geta ekið suður eftir 3 sólarhringa, þó mesta ófærðin sé suðvestanlands í bili. Læt nokkrar myndir fljóta  með sem sýna stöðuna eins og hún hefur verið undanfarið.

                                                    Kuldinn á Fjarðarheiði 16. des. 2022...
                                                Síðasta ferð Norrænu til Sfk þetta árið :) 
                                                30 ár liðin frá láti Eiríks tengdapabba <3 


Thursday, December 15, 2022

Flækingar og jólasnjór !

 Nú þegar desember er hálfnaður er veturinn loksins kominn með snjó og frosti og þá birtust loks nokkrir svangir flækingsfuglar sem fengu epli og fleira í gogginn. Dúfurnar halda áfram að valda vandræðum, því þegar litlu snjótittlingarnir mættu, þá var eina leiðin til að fóðra þá, að setja upp "búrið" sem við höfum sett upp s.l. vetur til að koma í veg fyrir að dúfurnar ætu allt frá þeim. Við vitum að svartþrestir eru hér nokkrir af báðum kynjum og einn glóbrystingur og fleiri litir smáfuglar, sem gætu verið gransöngvarar ?  En ekki hefur tekið að mynda þá litlu, því miður !





 

Friday, December 02, 2022

Rúnar minn 70 ára !

 Þann 1. desember 2022 varð Rúnar minn 70 ára !   Mamma hans sagði mér eitt sinn, að þegar hún gekk með hann, þá hefði hún hrasað illa skömmu áður en hann fæddist og það virtist hafa sett fæðingu hans af stað fyrir tímann.  En mig minnir að hún segði að hann hefði ekki átt að fæðast fyrr en mánuði síðar ? Ekki man ég samt hve þungur hann var við fæðingu, en hann hefur allavega haldið sér vel þessi 70 ár.

                                Afmælismaturinn var hangikjöt og meðlæti að ósk Rúnars !
                                            Þennan fallega vönd fékk Rúnar frá Mikka Jóns !