Monday, October 10, 2005

Adam ömmustrákur


Góðan og blessaðan daginn !
Hvernig skyldi veðrið vera hjá ykkur þessa stundina ? Hér er súld og býsna haustlegt, gulnuð laufblöð liggjandi á víð og dreif, svo að gott er að kúra innandyra. En nú er best ég komi mér að aðalefni dagsins....
Fyrir ykkur sem ekki sjáið ömmustrákinn minn ADAM reglulega, vil ég setja hér eina nýlega mynd af honum og vísa ykkur á albúmið sem ég bjó til handa honum en það er á slóðinni: http://photos.yahoo.com/sollasig54
Þar eru líka fleiri albúm með nokkrum myndum frá s.l. sumri, bæði ferðinni til Skotlands sem og ættar/fjölskyldumótum hér heima á Íslandi.
Jóhanna Björg er líka með bloggsíðu: http://johannabjorg.blogspot.com þar getið þið komist inn á ýmsar síður sem tilheyra fjölskyldunni, m.a. síðuna hans Adams Oda inni á Barnaland.is en þið þurfið að nota aðgangsorð þangað inn, það er nafnið á hundinum þeirra. Ef þið ekki vitið það, hafið bara samband.
Ég læt þetta nægja af spjalli í dag, er á leið í vinnuna.
Hafið það gott, hvernig sem viðrar á ykkur...
Heyrumst /ss

2 comments:

Bára Mjöll said...

Velkomin í bloggheima Solla mín og til hamingju með síðuna :) Hún lofar svo sannarlega góðu. Er ekki í lagi að ég setji "link" á hana inn á mína síðu?

Sólveig Sigurðardóttir said...

Jú jú Bára mín, alveg sjálfsagt, mér er bara heiður að því og þakka þér fyrir !