Tuesday, July 31, 2012

Mundi frændi kvaddur !

Minn kæri frændi Guðmundur Theodórsson, eða Mundi eins og við kölluðum hann alltaf, lést hinn 22. júlí eftir löng og erfið veikindi. Mundi var einstaklega þolinmóður og góður við okkur systkinabörnin sín. Hann hafði alltaf tíma til að sinna okkur, kenna okkur og leiðbeina og gerði það á einstakan hátt, svo við lærðum sem mest af því. Hann var mikill og góður bóndi, hestamaður, íþróttamaður, söngmaður og hafði gaman af að dansa gömlu dansana. Hann var líka einstök skytta og veiddi jafnt refi, minka og fugla til matar, auk þess að veiða silung alla æfi í Hafursstaðavatni og víðar.
Ég á ótal margar minningar um hann og okkar góðu samverustundir sem eru mér ómetanlegar og verða aldrei þakkaðar sem skyldi.
Við kvöddum hann hinstu kveðju við útför hans í gær, 30. júlí frá Skinnastaðakirkju í Öxarfirði.
Blessuð sé minning þín kæri frændi !

Gamlar skólasystur !


Tveimur síðustu kvöldunum eyddum við með mínum gömlu góðu skólasystrum og makar þeirra voru með okkur annað kvöldið. Við elduðum saman heima hjá Önnu og Ásgeiri og áttum þar saman yndislegt kvöld 10 manns í hóp og höfðum nóg að spjalla.
Kvöldið eftir fórum við 5 saman út að borða og skemmtum okkur ekki síður vel og fengum góðan mat í Pakkhúsinu sem ég hef ekki komið í fyrr en núna, enda er þetta fyrsta sumarið sem það er starfandi sem slíkt.

Mærudagar 2012



Hinir árlegu Mærudagar voru að vanda síðustu helgina í Júlí og sá í efra svíkur okkur ekki frekar en fyrr, því sól og blíða var alla dagana, svo helgin varð eins ánægjuleg og kostur var.
Margt var til skemmtunar gert og allir hljóta að hafa fundið eitthvað við sitt hæfi. Við fórum að vísu minna en oft áður vegna annríkis við aðra hluti, en við kíktum á vélhjólagengið og fórum í bæjargönguna, fórum rúnt um bæinn að taka myndir af skreytingum sem eru víða skemmtilegar og fallegar. Við fórum í árlegu garðveisluna hjá Adda og Stellu, en þetta er í síðasta sinn sem hún verður hjá þeim, því þau eru að flytja til Akureyrar.
Við kíktum á málverkasýninguna hjá Vidda Breiðfjörð og í Helguskúr eins og alltaf. Skoðuðum markaðinn og  allt hafnarsvæðið. Fengum okkur að borða hér og þar og svo mætti lengi telja, en ég læt þetta nægja að sinni.

Ættarmót og 80 ára afmæli Jóhanns frænda


Áttræðis afmæli Jóhanns föðurbróður míns fór fram í Skúlagarði 13. júlí og fór vel fram eins og við mátti búast. Húsið var fullt af fólki og nóg af gleði og gaman.
En daginn eftir hittist öll Arnanesfjölskyldan á Ættaróðalinu hjá Jónda og Þórunni. Börn Erlings afabróður frá Ásbyrgi mættu líka með sína afkomendur og það var sérstaklega gaman að hitta þau og kynnast þeim sem við höfðum ekki séð áður. Þau komu með gamlar fjölskyldumyndir á minniskubb sem ég sýndi í tölvunni ásamt mínum gömlu myndum og eldra fólkið virtist hafa sérstaklega gaman af að sjá.
Mikið var spjallað og svo auðvitað grillað og borðað saman, þó svolítið þröngt væri um þennan stóra hóp.
Vonandi verðum við dugleg áfram að hittast og hafa samband...

Hringferð um landið og barnapössun


Þegar Rúnar losnaði við togarann og komst í frí, þá drifum við okkur af stað í hringferð á húsbílnum, m.a. í þeim tilgangi að hitta barnabörnin og passa þau á meðan foreldrarnir færu yfir búslóðina sem skilin var eftir þegar þau fluttu til Noregs. Á leiðinni suður heimsóttum við ýmsa staði eins og Gleðivíkina á Djúpavogi þar sem öll steineggin skreyta höfnina. Síðan skoðuðum við nýlegt steinasafn á Höfn, það bar eigendunum sannarlega fagurt vitni.
Barnagæslan fór fram í sól og blíðu dag eftir dag og við þvældumst um með börnin á söfn og í Laugardalinn, þar sem gæsirnar voru vinsælar og rjómaís var vel þeginn annað slagið í hitanum. Við eyddum góðum stundum hjá systrum okkar Rúnars og fjölskyldum í endalausum matarveislum og eitthvað var kíkt í búðir o.fl.
Norðurferðin var hinsvegar hraðferð, því að afmæli mömmu var næst á dagskrá og sömuleiðis 80 ára afmæli elsta föðurbróður míns. En síðan tók við ættarmót þeirra systkina og næstu myndir verða frá þeim viðburðum.

17. júní 2012

17. júní var óvenju sólríkur og líflegur að þessu sinni. Fjölmiðlamenn voru mættir í bæinn til að taka upp síðasta myndefnið í þáttinn "LANDINN" sem allur verður frá Seyðisfirði í þetta sinn. Skotið var af fallbyssunni eins og venjulega og önnur hefðbundin atriði á dagskránni, eins og fjallkona, tónlist o.fl. Við vorum líka með gesti í heimsókn og hér má sjá þau Björn Orra og Siggu Höllu í heimsókn á Tækniminjasafninu sem þau höfðu gaman af að skoða...

Saturday, June 09, 2012

Sjómannadagurinn 2012

Sjómanna- dagurinn 2012 var sólríkur en nokkuð svalur. Siglingin á Gullver út fjörðin gekk samt vel og margt var um manninn, sérstaklega fannst mér mikið um aðkomufólk, bæði gamla Seyðfirðinga og óþekkta nágranna, líklega af Héraði og víðar ? Það var heilmikið um að vera á svæðinu við Fiskvinnsluna eins og venjulega, þar var keppt í kappróðri, reiptogi, kapphlaupi og plankaslætti og húrruðu allir þátttakendur á plankanum í sjóinn sem hlýtur að hafa verið kaldur (of kaldur fyrir mig :) Árgangahópar sem voru mættir til að fagna tímamótum voru mættir og duglegir að taka þátt í því sem var í boði og auk þess var boðið uppá fiskisúpu og rjóma/súkkulaðivöfflur og kaffi. Síðan var sjómannahóf um kvöldið þar sem árgangahóparnir 3 fluttu smá skemmtan og Gullversmenn tóku líka lagið. Maturinn rann ljúflega niður og Björn Hildir veislustjóri gerði grín að sjálfum sér og stjórninni og hélt uppi fjöldasöng, svo þetta kvöld fór friðsamlega fram á allan hátt. Hávaðinn í hljómsveitinni var full mikill að vanda, svo við fórum heim með fyrra fallinu og Ella mágkona sem kom austur til að taka þátt í skemmtun 1958 árgangsins var hin hressasta og lét ekki sitt eftir liggja í keppninni og öllu öðru þessa helgina....

Uppákomur á Seyðisfirði,,,

Það vantar ekki að nóg sé um að vera hér á Seyðisfirði. Á meðan við vorum í Noregi kviknaði í barnum hans Eyþórs, þ.e. Frú Láruhúsi. Sem betur fer brann það lítið og var tryggt, þannig að vonir standa til að hægt verði að gera það upp á ný. Svo héldu félagar í Leikfélaginu áfram að sýna hið stórgóða leikrit Pelíkanann sem síðan var valið til að koma fram í þættinum LANDINN, en lokaþátturinn verður sýndur 17. júní og sá þáttur verður eingöngu frá Seyðisfirði. Sjávarguðirnir spiluðu líka og við Seyðfirðingar fylltum bíósal Herðubreiðar til að vera bakgrunnur sem hlær, klappar og tekur þátt í þættinum. Sjósundkonurnar verða líka með í þessum þætti og ýmislegt fleira sem ótalið er hér, enda var ég ekki viðstödd allar upptökur og hlakka því til að sjá útkomuna eftir rúma viku.

Sumarið loksins komið !

Á meðan við vorum fjarstödd var gott veður á Seyðisfirði og allur snjór hvarf úr bænum. Þegar við komum til baka voru fuglar liggjandi á hreiðrum sínum og matjurtagarðurinn okkar beið eftir að verða endurnýjaður. Rúnar sá nú að mestu um það, hann reif upp gamla fúna timbrið og bjó til 3 nýja kassa sem ég setti í kartöflur, gulrætur og jarðarber, en notaði svo gömlu jarðaberjakassana undir grænmetið. Vonandi veður sæmileg uppskera eftir þessa breytingu, því við bættum nýrri mold og skít og sandi í beðin og hreinsuðum burt allt gras og illgresi. Við gerðum þetta eins vel og aðstæður leyfðu, svo nú er bara að vona að veðrið verði líka hliðhollt okkur.

Gengið á Helgafell

Áður en við lögðum af stað til Noregs, gistum við í Hafnarfirðinum og gengum frá íbúðinni þar til útleigu í sumar. Harpa mágkona er alltaf jafn rösk og bauð okkur og Ellu mágkonu og hennar fjölskyldu í mat, svo við hefðum tækifæri til að hittast og spjalla. Hún vildi líka nota góða veðrið og ganga á Helgafell sem er þægilegt göngufjall suður af Hafnarfirði. Mig langaði að skreppa með henni og Rúnar kom þá líka, þó hann væri ekki góður í bakinu. En merkilegt nokk, þessi ganga varð líklega til þess að honum batnaði bara alveg og það var reglulega hressandi að brölta þessa leið eins og fjöldi manns gerði þennan dag. Það er ekki mín sterka hlið að labba upp brekkur eða klífa fjöll, en að ganga á jafnsléttu er ekkert mál, svo ég var bara ánægð með að hafa drifið mig þarna upp, þó ég færi frekar rólega á köflum. Á bakaleiðinni var ég að leika mér við myndatökur eins og sjá má á síðustu myndinni, þar sem við vorum komin niður í skógarlund sem varð á vegi okkar :)

Noregsferð í sól og blíðu

Mánudaginn 21. maí flugum við Rúnar út til Oslo í heimsókn til Jóhönnu okkar og fjölskyldu hennar. Einnig heimsóttum við líka Þröst bróðir Rúnars og hans fjölskyldu sem býr í sjálfri Oslo en Jóhanna og co búa í svefnbænum Ask sem er rétt utan við borgina. Þar er mikill skógur og rólegt mannlíf og aðalbláberjaling í flestum görðum, enda þekur það skógarbotninn allt um kring og því von um góða uppskeru í sumar, því komnir voru sætukoppar í miklu magni. Þau kunna öll mjög vel við sig á þessum stað og veðrið var með eindæmum gott þessa viku sem við stoppuðum hjá þeim, eða um og yfir 30 stig, því hitamælirinn sem var í skugga undir þakskyggni stóð flesta dagana í 30, þannig að hitinn í sólinni hefur verið mikið meiri. Enda flúðum við gjarnan í skugga trjánna og röltum heilmikið um skóginn með barnabörnin okkar, heimsóttum Adam í skólann og hittum þar 2 bekkjarsystur hans sem eru íslenskar og þar af önnur ættuð frá Seyðisfirði. Svona er nú heimurinn lítill. Laugardaginn fyrir Hvítasunnu dvöldum við öll hjá Þresti mági og snæddum þar saman frábæra grillmáltíð innan um plómu og eplatré. Á Hvítasunnudag þegar við þurftum að fara heim, var engu líkara en að allir borgarbúar væru í sólbaði á víðavangi, þar sem vötn, ár eða lækir voru til að busla í, enda hitinn mikill. En okkur var sagt að við hefðum farið með góða veðrið, því daginn eftir var orðið svalt og kærkomin rigning var þá mætt á svæðið. Þetta var ógleymanleg ferð, þó ekki færum við í neinar skoðunarferðir að þessu sinni, nema um nágrennið en þar var líka ýmislegt að sjá þó ekki verið þess getið frekar hér :)

Friday, May 18, 2012

Maí-hret !

Dagana 13.-15. maí var stórhríðarveður hér og allt varð hvítt af snjó. Vesalings farfuglarnir sem voru nýkomnir voru í miklum vandræðum við að afla sér fæðu, t.d. hrossagaukar sem trítluðu hér hundruðum saman um húsagarða og stungu sínu langa nefi ofan í snjóinn í leit að einhverju ætilegu í frostlausu grasinu undir. Því þrátt fyrir veðrið og snjóinn, þá var frostlaust á daginn og einhvern veginn slapp þetta furðu vel, flestir fuglarnir virtust þrauka, bæði gæsirnar sem lágu á eggjunum í hretinu og hinir nýkomnu. Þó urðu óhjákvæmilega aföll, t.d. fengum við einn steindepil í hendur sem kominn var að dauða, bæði horaður og kaldur og hefur trúlega dáið úr hungri og þreytu. Hann er svo fallegur að ég tók hann greyið og setti í frystipoka og hef hugsað mér að láta stoppa hann upp....

Saturday, May 12, 2012

Frumsýning og vorhátíðarkvöldverður !

Föstudaginn 11. maí var vorhátíð hjá starfsfólki Seyðisfjarðar- bæjar. Þá mætti um 40 manns í þríréttaða matarveislu á Hótelið og síðan fór allur hópurinn saman á frumsýningu á leikritinu Pelíkaninn, sem er frumsamið verk eftir heimamann (Ágúst Torfa Magnússon)og verður að segjast að honum hefur tekið mjög vel til með þetta fyrsta verk sitt sem sýnt er hér (mér vitanlega). Þetta er bæði spennandi og bráðskemmtilegt verk og allir leikarar sem flestir eru ungir að árum, stóðu sig með mikilli prýði og ótrúlegt að þau hafi aldrei lært neitt af þessu tagi, því svo vel skiluðu þau sínum hlutverkum, án undantekningar. Leikstjóri heftur greinilega líka kunnað sitt fag, en allir sem tóku þátt í þessu eru heimamenn og við getum því verið stolt af þessum hæfileikaríka hópi ungs fólks sem stendur sig svona vel og kemur skemmtilega á óvart :)

Farfuglar streyma til landsins

Þegar farfuglarnir byrja að streyma til landsins, þá finnst manni vorið vera alveg á næstu grösum. Tjaldurinn var fyrstur að vanda og lét heldur betur heyrast í sér hér við Fjarðarána. Svo komu skógarþrestir, gæsirnar og straumendur og síðan öll fuglafánan sem sækir til okkar á hverju vori, stelkar, hrossagaukar, spóar, lóur, jaðrakanar og smáfuglar eins og maríuerlan og nú síðast kom krían, en hún er sannkallaður sumarboði og maður væntir betra veðurs eftir að hún er mætt :) Ég var svo heppin að heyra í fyrsta hrossagauknum í suðvestri og fyrsta maríuerlan sýndi mér hægri hliðina á sér, sem skv. gamalli þjóðtrú segir að þýði vestanáttir í sumar. Ég lifi því í voninni að fá gott sumar og ætla nú að sannreyna hvort hægt sé að treysta á svona gamla þjóðtrú hehe :) En vetrarfuglarnir okkar heyja líka harða baráttu og smyrlar og fálki hafa séð til þess að dúfum, rjúpum og öðrum fuglum hefur fækkað hér þó nokkuð, enda hafa þeir fært sig upp á skaftið og eru farnir að veiða hér inni á milli húsa í bænum og óhræddir við mannfólkið sem vitanlega gerir þeim ekki mein og það virðast þeir vita... Það er samt leitt að horfa uppá þessa lífsbaráttu, rétt eins og mér finnst ekki gaman að þurfa að veiða okkur til matar, þó ég kunni bæði að meta fisk og villibráð. Ég kýs samt að borða eins mikið af ávöxtum og grænfóðri eins og ég hef lyst á en lofa hinu að fljóta með í hófi...

Vorið á næsta leiti...

Veðráttan í vetur hefur verið mjög skrítin og eiginlega ekki snjór og vetur nema í 6 vikur, því að í byrjun febrúar kom blíðuveður, allur snjór hvarf og gróður fór að taka við sér. Síðan þá hefur gengið á með stuttum hríðardögum og sólardögum, misköldum/hlýjum sem ruglað hefur allan gróður og okkur mannfólkið jafnvel líka, því flestir vilja hafa vetur á veturna og sumar á sumrin, en þessi regla hefur farið úr skorðum á s.l. árum, hverju sem um má kenna. Það var ótrúlega snemma sem krókusar fóru að springa út og brum að myndast á trjáum og runnum. Og á endanum kom svo ein feit og falleg hunangsfluga inn um opinn gluggann í blíðunni og hvíldi sig hjá okkur eina nótt áður en hún hélt aftur af stað út í blíðuna. Vonandi veit þetta tíðafar ekki á vont sumar, við þurfum svo sannarlega á sólarsumri að halda eftir sólarleysið í 4 mánuði í vetur og vona ég að í þetta sinn veðri veðurguðirnir okkur hliðhollir :)

Páskar og fermingar

Ég hef verið mjög löt við að skrifa fréttir hér inn í margar vikur og man ekki lengur allt sem gerst hefur, en um páskana, sem voru rólegir hjá okkur, voru fermingar, bæði hér á Seyðisfirði og á Norðfirði og víðar. Gróa og Níels voru að ferma Hjálmar Aron og við drifum okkur í veisluna eftir að ég var búin að syngja með kórnum í fermingarmessunni hér heima. Þá var ég búin að útbúa fermingarkort handa öllum börnunum og ganga frá þeim, en það geri ég árlega. Mér finnst alltaf persónulegra að gera kortin sjálf, þó einstaka sinnum hafi ég ekki haft tíma til þess og kaupi þá kort í það skiptið... Hér á bæ var borðuð páskagæs sem smakkaðist mjög vel og sá Rúnar um að svíða hana, en ég um eldamennskuna. Eins og venjulega er hefðbundinn ananasfromage eftirréttur sem við kunnum öll að meta og síðast en ekki síst þá setti ég á 2 tertur yfir hátíðisdagana og óhætt að segja að allir hafi verið saddir eftir þessa frídaga :)

Föt sem framlag - verkefni fyrir RKI

Í kringum 20 manns hefur dundað við það í vetur að hekla, prjóna og sauma barnaföt og teppi o.fl. fyrir RKI verkefnið, "Föt sem framlag" og sendir hafa verið út nokkrir tugir af pökkum til þurfandi aðila erlendis, í Afríku og Hvíta Rússlandi. Þetta er annar veturinn sem þetta verkefni hefur verið í gangi og sama fólkið að mestu unnið við það. Það eru alltaf nokkrar konur sem hittast vikulega í Sæbóli og taka til hendinni eins og þarf hverju sinni. Einn karlmaður hefur þó lagt hönd á plóginn og prjónað nokkur teppi. Sjálf hef ég heklað nokkur teppi, mest úr afgöngum sem ég hef safnað og úr 2 peysum sem ég rakti upp og notaði, (sjá fjólubláa teppið). Einnig hef ég séð um að tæma fatagám RKI reglulega og þar hef ég fundið bæði garn til að nota (sjá bleika teppið)og heilmikið af barnafötum sem við höfum getað notað í fatasendingarnar. Formaðurinn okkar hefur líka lagt hönd á plóginn, því hann hefur útvegað handklæði í pakkana og svona mætti áfram telja. Þegar margir hjálpast að, þá geta ýmis verkefni gengið nokkuð vel...