Saturday, June 09, 2012

Sumarið loksins komið !

Á meðan við vorum fjarstödd var gott veður á Seyðisfirði og allur snjór hvarf úr bænum. Þegar við komum til baka voru fuglar liggjandi á hreiðrum sínum og matjurtagarðurinn okkar beið eftir að verða endurnýjaður. Rúnar sá nú að mestu um það, hann reif upp gamla fúna timbrið og bjó til 3 nýja kassa sem ég setti í kartöflur, gulrætur og jarðarber, en notaði svo gömlu jarðaberjakassana undir grænmetið. Vonandi veður sæmileg uppskera eftir þessa breytingu, því við bættum nýrri mold og skít og sandi í beðin og hreinsuðum burt allt gras og illgresi. Við gerðum þetta eins vel og aðstæður leyfðu, svo nú er bara að vona að veðrið verði líka hliðhollt okkur.

Gengið á Helgafell

Áður en við lögðum af stað til Noregs, gistum við í Hafnarfirðinum og gengum frá íbúðinni þar til útleigu í sumar. Harpa mágkona er alltaf jafn rösk og bauð okkur og Ellu mágkonu og hennar fjölskyldu í mat, svo við hefðum tækifæri til að hittast og spjalla. Hún vildi líka nota góða veðrið og ganga á Helgafell sem er þægilegt göngufjall suður af Hafnarfirði. Mig langaði að skreppa með henni og Rúnar kom þá líka, þó hann væri ekki góður í bakinu. En merkilegt nokk, þessi ganga varð líklega til þess að honum batnaði bara alveg og það var reglulega hressandi að brölta þessa leið eins og fjöldi manns gerði þennan dag. Það er ekki mín sterka hlið að labba upp brekkur eða klífa fjöll, en að ganga á jafnsléttu er ekkert mál, svo ég var bara ánægð með að hafa drifið mig þarna upp, þó ég færi frekar rólega á köflum. Á bakaleiðinni var ég að leika mér við myndatökur eins og sjá má á síðustu myndinni, þar sem við vorum komin niður í skógarlund sem varð á vegi okkar :)

Noregsferð í sól og blíðu

Mánudaginn 21. maí flugum við Rúnar út til Oslo í heimsókn til Jóhönnu okkar og fjölskyldu hennar. Einnig heimsóttum við líka Þröst bróðir Rúnars og hans fjölskyldu sem býr í sjálfri Oslo en Jóhanna og co búa í svefnbænum Ask sem er rétt utan við borgina. Þar er mikill skógur og rólegt mannlíf og aðalbláberjaling í flestum görðum, enda þekur það skógarbotninn allt um kring og því von um góða uppskeru í sumar, því komnir voru sætukoppar í miklu magni. Þau kunna öll mjög vel við sig á þessum stað og veðrið var með eindæmum gott þessa viku sem við stoppuðum hjá þeim, eða um og yfir 30 stig, því hitamælirinn sem var í skugga undir þakskyggni stóð flesta dagana í 30, þannig að hitinn í sólinni hefur verið mikið meiri. Enda flúðum við gjarnan í skugga trjánna og röltum heilmikið um skóginn með barnabörnin okkar, heimsóttum Adam í skólann og hittum þar 2 bekkjarsystur hans sem eru íslenskar og þar af önnur ættuð frá Seyðisfirði. Svona er nú heimurinn lítill. Laugardaginn fyrir Hvítasunnu dvöldum við öll hjá Þresti mági og snæddum þar saman frábæra grillmáltíð innan um plómu og eplatré. Á Hvítasunnudag þegar við þurftum að fara heim, var engu líkara en að allir borgarbúar væru í sólbaði á víðavangi, þar sem vötn, ár eða lækir voru til að busla í, enda hitinn mikill. En okkur var sagt að við hefðum farið með góða veðrið, því daginn eftir var orðið svalt og kærkomin rigning var þá mætt á svæðið. Þetta var ógleymanleg ferð, þó ekki færum við í neinar skoðunarferðir að þessu sinni, nema um nágrennið en þar var líka ýmislegt að sjá þó ekki verið þess getið frekar hér :)

Friday, May 18, 2012

Maí-hret !

Dagana 13.-15. maí var stórhríðarveður hér og allt varð hvítt af snjó. Vesalings farfuglarnir sem voru nýkomnir voru í miklum vandræðum við að afla sér fæðu, t.d. hrossagaukar sem trítluðu hér hundruðum saman um húsagarða og stungu sínu langa nefi ofan í snjóinn í leit að einhverju ætilegu í frostlausu grasinu undir. Því þrátt fyrir veðrið og snjóinn, þá var frostlaust á daginn og einhvern veginn slapp þetta furðu vel, flestir fuglarnir virtust þrauka, bæði gæsirnar sem lágu á eggjunum í hretinu og hinir nýkomnu. Þó urðu óhjákvæmilega aföll, t.d. fengum við einn steindepil í hendur sem kominn var að dauða, bæði horaður og kaldur og hefur trúlega dáið úr hungri og þreytu. Hann er svo fallegur að ég tók hann greyið og setti í frystipoka og hef hugsað mér að láta stoppa hann upp....

Saturday, May 12, 2012

Frumsýning og vorhátíðarkvöldverður !

Föstudaginn 11. maí var vorhátíð hjá starfsfólki Seyðisfjarðar- bæjar. Þá mætti um 40 manns í þríréttaða matarveislu á Hótelið og síðan fór allur hópurinn saman á frumsýningu á leikritinu Pelíkaninn, sem er frumsamið verk eftir heimamann (Ágúst Torfa Magnússon)og verður að segjast að honum hefur tekið mjög vel til með þetta fyrsta verk sitt sem sýnt er hér (mér vitanlega). Þetta er bæði spennandi og bráðskemmtilegt verk og allir leikarar sem flestir eru ungir að árum, stóðu sig með mikilli prýði og ótrúlegt að þau hafi aldrei lært neitt af þessu tagi, því svo vel skiluðu þau sínum hlutverkum, án undantekningar. Leikstjóri heftur greinilega líka kunnað sitt fag, en allir sem tóku þátt í þessu eru heimamenn og við getum því verið stolt af þessum hæfileikaríka hópi ungs fólks sem stendur sig svona vel og kemur skemmtilega á óvart :)

Farfuglar streyma til landsins

Þegar farfuglarnir byrja að streyma til landsins, þá finnst manni vorið vera alveg á næstu grösum. Tjaldurinn var fyrstur að vanda og lét heldur betur heyrast í sér hér við Fjarðarána. Svo komu skógarþrestir, gæsirnar og straumendur og síðan öll fuglafánan sem sækir til okkar á hverju vori, stelkar, hrossagaukar, spóar, lóur, jaðrakanar og smáfuglar eins og maríuerlan og nú síðast kom krían, en hún er sannkallaður sumarboði og maður væntir betra veðurs eftir að hún er mætt :) Ég var svo heppin að heyra í fyrsta hrossagauknum í suðvestri og fyrsta maríuerlan sýndi mér hægri hliðina á sér, sem skv. gamalli þjóðtrú segir að þýði vestanáttir í sumar. Ég lifi því í voninni að fá gott sumar og ætla nú að sannreyna hvort hægt sé að treysta á svona gamla þjóðtrú hehe :) En vetrarfuglarnir okkar heyja líka harða baráttu og smyrlar og fálki hafa séð til þess að dúfum, rjúpum og öðrum fuglum hefur fækkað hér þó nokkuð, enda hafa þeir fært sig upp á skaftið og eru farnir að veiða hér inni á milli húsa í bænum og óhræddir við mannfólkið sem vitanlega gerir þeim ekki mein og það virðast þeir vita... Það er samt leitt að horfa uppá þessa lífsbaráttu, rétt eins og mér finnst ekki gaman að þurfa að veiða okkur til matar, þó ég kunni bæði að meta fisk og villibráð. Ég kýs samt að borða eins mikið af ávöxtum og grænfóðri eins og ég hef lyst á en lofa hinu að fljóta með í hófi...

Vorið á næsta leiti...

Veðráttan í vetur hefur verið mjög skrítin og eiginlega ekki snjór og vetur nema í 6 vikur, því að í byrjun febrúar kom blíðuveður, allur snjór hvarf og gróður fór að taka við sér. Síðan þá hefur gengið á með stuttum hríðardögum og sólardögum, misköldum/hlýjum sem ruglað hefur allan gróður og okkur mannfólkið jafnvel líka, því flestir vilja hafa vetur á veturna og sumar á sumrin, en þessi regla hefur farið úr skorðum á s.l. árum, hverju sem um má kenna. Það var ótrúlega snemma sem krókusar fóru að springa út og brum að myndast á trjáum og runnum. Og á endanum kom svo ein feit og falleg hunangsfluga inn um opinn gluggann í blíðunni og hvíldi sig hjá okkur eina nótt áður en hún hélt aftur af stað út í blíðuna. Vonandi veit þetta tíðafar ekki á vont sumar, við þurfum svo sannarlega á sólarsumri að halda eftir sólarleysið í 4 mánuði í vetur og vona ég að í þetta sinn veðri veðurguðirnir okkur hliðhollir :)

Páskar og fermingar

Ég hef verið mjög löt við að skrifa fréttir hér inn í margar vikur og man ekki lengur allt sem gerst hefur, en um páskana, sem voru rólegir hjá okkur, voru fermingar, bæði hér á Seyðisfirði og á Norðfirði og víðar. Gróa og Níels voru að ferma Hjálmar Aron og við drifum okkur í veisluna eftir að ég var búin að syngja með kórnum í fermingarmessunni hér heima. Þá var ég búin að útbúa fermingarkort handa öllum börnunum og ganga frá þeim, en það geri ég árlega. Mér finnst alltaf persónulegra að gera kortin sjálf, þó einstaka sinnum hafi ég ekki haft tíma til þess og kaupi þá kort í það skiptið... Hér á bæ var borðuð páskagæs sem smakkaðist mjög vel og sá Rúnar um að svíða hana, en ég um eldamennskuna. Eins og venjulega er hefðbundinn ananasfromage eftirréttur sem við kunnum öll að meta og síðast en ekki síst þá setti ég á 2 tertur yfir hátíðisdagana og óhætt að segja að allir hafi verið saddir eftir þessa frídaga :)

Föt sem framlag - verkefni fyrir RKI

Í kringum 20 manns hefur dundað við það í vetur að hekla, prjóna og sauma barnaföt og teppi o.fl. fyrir RKI verkefnið, "Föt sem framlag" og sendir hafa verið út nokkrir tugir af pökkum til þurfandi aðila erlendis, í Afríku og Hvíta Rússlandi. Þetta er annar veturinn sem þetta verkefni hefur verið í gangi og sama fólkið að mestu unnið við það. Það eru alltaf nokkrar konur sem hittast vikulega í Sæbóli og taka til hendinni eins og þarf hverju sinni. Einn karlmaður hefur þó lagt hönd á plóginn og prjónað nokkur teppi. Sjálf hef ég heklað nokkur teppi, mest úr afgöngum sem ég hef safnað og úr 2 peysum sem ég rakti upp og notaði, (sjá fjólubláa teppið). Einnig hef ég séð um að tæma fatagám RKI reglulega og þar hef ég fundið bæði garn til að nota (sjá bleika teppið)og heilmikið af barnafötum sem við höfum getað notað í fatasendingarnar. Formaðurinn okkar hefur líka lagt hönd á plóginn, því hann hefur útvegað handklæði í pakkana og svona mætti áfram telja. Þegar margir hjálpast að, þá geta ýmis verkefni gengið nokkuð vel...

Enn ein norðurferðin :)

Helgina 20.-22. apríl vorum við Rúnar fyrir norðan í enn einni heimsókninni hjá mömmu. Henni fer stöðugt aftur, því miður, en svona er þessi sjúkdómur, það er engin miskunn og eins gott að við höfum fyrri reynslu af slíku, það auðveldar málið. En það eru alltaf næg verkefni fyrir norðan, ég gat ekki sætt mig við ljóta göngustíginn sem illa var gengið frá við lóðina okkar, ég réðst á hann og hreinsaði ljótu þökurnar sem hafði verið hrúgað meðfram þeim, reyndi að laga kantinn öðrum megin, en fjarlægði allt sem var nær húsinu, nóg er samt eftir af ljótleikanum. Það er svo spurning hvort ég fæ skammir fyrir þetta, en vonandi ekki. Rúnar fékk nokkra nýja rauðmaga í matinn, sem við skiptum á milli okkar og Sigrúnar vinkonu, en hún kom líka í kjúklingasúpu til okkar og sat með okkur að horfa á lokaþáttinn í Útsvari, enda okkar lið eystra að keppa :) Síðast en ekki síst skrapp ég í heimsókn til Þórnýjar Björns til að skoða gamlar myndir og fékk að taka afrit af nokkrum þeirra sem við settum svo á Facebook til gamans fyrir Húsvíkinga.... Veðrið var eins og best er á kosið á þessum árstíma og auður vegur alla leiðina austur og mikið um hreindýr og gæsir á ferðinni eystra...

Thursday, April 19, 2012

sumardagurinn fyrsti !




Frá því um miðjan febrúar hefur verið nánast auð jörð og fært um allt land. En á síðasta vetrardag fór að kafsnjóa og þegar við vöknuðum í morgun á sumardaginn fyrsta (19. apríl 2012) þá var jörð alhvít og næstum ökladjúpur snjór yfir öllu. Ég vorkenndi nýkomnu þröstunum og mokaði í þá eplum sem þeir átu með bestu lyst. En þá fór sólin að skína og það var blíðuveður í allan dag og allar götur urðu auðar og mikið af snjónum hopaði. Vonandi hverfur hann bara alveg fyrr en varir og sumarið verður líka vonandi betra en undanfarin ár, því það fraus saman sumar og vetur...

Monday, March 26, 2012

Bjargdúfurnar bjarga sér :)


Í vetur á meðan snjórinn var, þá settum við upp spörfuglafóðrara í stóru öspina í von um að snjótittlingar og aðrir spörfuglar lærðu að nota hann. En satt að segja þá litu þeir ekki við honum, svo hann beið bara eftir skógarþröstunum sem trúlega kynnu að meta hann þegar þeir kæmu til landsins. En Bjargdúfurnar voru fyrri til, þær koma hér daglega í von um æti og uppgötvuðu þessa fóðuruppsprettu og voru ekki lengi að tæma dallinn og setjast síðan í tréð en það hafa þær aldrei gert áður...

Sumarblíða í mars !





Síðustu 3 dagar 23.-25. mars voru sannkallaðir sumardagar hér á Seyðisfirði, því veðurblíðan var slík að margir spókuðu sig utandyra á stuttbuxum og bolum, enda fór hitamælirinn hjá okkur í 19 gráður á föstudaginn en aðeins minna um helgina. Við Rúnar fórum bæði hjólandi og akandi um fjörðinn m.a. til að kanna fuglalífið hér, sem var óvenju rólegt í blíðunni og tókum dálítið af myndum af fólki, hlutum og fiðurfé sem naut sólarinnar í logninu. Gróðurinn hefur líka verið að gægjast uppúr moldinni og fyrstu krókusarnir í okkar garði sprungu út á föstudaginn og runnar og tré eru við það að laufgast, sem er alltof snemmt, því ótrúlegt er að ekki komi vorhret á næstu vikum.... þó auðvitað sé óskandi að svo verði ekki og veðráttan er orðin svo furðuleg að allt virðist geta gerst ???

Saturday, March 17, 2012

Hörð lífsbarátta dýranna !



Það var mögnuð sjón að standa 3 metra frá smyrli sem hámaði í sig dúfu sem hann var búinn að drepa, án þess að nærvera mín hefði áhrif á hann.
Það var Unnur Óskarsdóttir kennari sem hringdi í mig og sagði mér frá smyrlinum á skólalóðinni, þar sem börnin hoppuðu í kringum fuglana, án þess að trufla, að því er virtist.
Svo mætti hingað grákráka sem er sjaldséður flækingur á Íslandi. Því miður hefur mér ekki tekist að berja hana augum, þó Rúnari og mörgum fleirum hafi tekist það. Ég er þó búin að fara margar ferðir í leit að henni og náði í eitt skiptið meðfylgjandi mynd af selnum sem virðist una sér vel á steinunum í lóninu á góðviðrisdögum...

Monday, February 27, 2012

Góugleði á Húsavík :)





Síðastliðinn föstudagsmorgunn var veður svolítið vafasamt en eftir að hafa kannað veðurútlit og spár fyrir helgina, þá ákváðum við að renna norður til mömmu, því að vel stóð á hjá okkur. Við vorum komin inn í Jökuldal þegar sólin fór að skína og fengum síðan rjómablíðu alla leið norður. En ansi var hvítt um að litast á leiðinni, þó ekki væri miklu snjómagni fyrir að fara. Við færðum Hillu frænku brodd og fréttum hjá henni að Gulli frændi væri á spítalanum eftir slæma byltu og að það væri flensa að ganga á spítalanum, svo við frestuðum heimsókn til hans til laugardags. En komumst þá að því að hann og félagar hans í herberginu voru allir frískir, svo okkur var óhætt og allir hressir á neðri hæðinni hjá mömmu blessaðri sem orðin er afskaplega heyrnarlaus og út úr heiminum. Ég held hún hafi ekki þekkt okkur alveg strax, því miður, þó hún væri fljót að jafna sig á því.
Við færðum líka Sigrúnu vinkonu brodd og hún bauð okkur í kvöldmat á laugardaginn ásamt Óla Héðins mági hennar sem er að vinna í íbúðinni þeirra Huldu. Við áttum saman mjög notalegan kvöldverð og spjall og kíktum svo til Óla í íbúðina til að sjá hversu fínt hant var búin að gera WC-ið - allt flísalagt.
Veðurblíðan hélst alla helgina og eftir hádegið á sunnudaginn þegar við vorum búin að kveðja alla, þá kíktum við inn á ljósmyndasýningu í Safnahúsinu og ég átti erfitt með að rífa mig þaðan tímanlega til að komast austur í björtu, því við vorum hrædd um að hálka væri á leiðinni, en það reyndist óþarfa áhyggjur, því sólin hafði brætt hana nær alla og heimferðin gekk því mjög vel, sem betur fer.

Wednesday, February 22, 2012

íþróttamaður ársins 2011.


Í kvöld á lokakvöldi Viskubrunns voru afhent verðlaun til þess aðila sem valinn var Íþróttamaður ársins 2011. Að þessu sinni var það ekki einhver ungur maður eða kona, heldur fullorðin kona, gift og 3ja barna móðir sem hefur verið einstaklega dugleg við langhlaup á s.l. 3 árum. Þetta er hún Stefanía Stefánsdóttir (kölluð Debý) sem lætur sig ekki muna um að skokka yfir Fjarðarheiði, hlaupa slatta af kílómetrum daglega og fara í víðavangshlaup, m.a. um Jökulsárgljúfur, Mývatnshring og fleira, auk þess sem hún stefnir á lengra maraþonhlaup í Boston á næsta ári. Hún er góð fyrirmynd bæði fyrir eldi og yngri...

Viskubrunnur 2012


Í kvöld var lokakeppnin í hinni árlegu spurningakeppni Seyðisfjarðar- skóla, Viskubrunni.
Undankeppnin hefur verið undanfarin þriðjudags-og miðvikudagskvöld og flest liðin hafa fallið úr keppni. En í kvöld kepptu efstu liðin um 4 efstu sætin, það voru PG stálsmiðjan sem varð í 4. sæti, Sýsluskrifstofan lenti í 3ja sæti og kennarar í Seyðisfjarðarskóla (sem nefna liðið sitt "Litla gula hænan") varð i 2. sæti og loks Ferðaþjónusta Austurlands sem varð í 1. sæti. Myndin sem hér fylgir með er af 3. efstu liðunum.
Það eina sem ég var ekki sátt við var fyrirkomulag spurninganna, þær voru oft mjög einhliða, t.d. voru 3 síðustu spurningarnar sem réðu úrslitum í lokakeppninni eintómar tónlistarspurningar og þar á undan eintómar kvikmyndaspurningar og íþróttaspurningar í stað þess að blanda saman öllum flokkum eins og sögu, landafræði, bókmenntum, náttúrufræði o.fl..

Sunday, February 19, 2012

Konudagur 2012



Ég var óvenju löt að koma mér á fætur að morgni konudags og fannst bara allt í lagi að vera löt. Í tilefni dagsins sveið Rúnar gæs til að hafa í helgarmatinn en það kom þó í minn hlut að elda hana, sem var lítið mál eftir alla forvinnuna við hana... og hún smakkaðist alveg óskaplega vel...
Við skruppum líka á rúntinn því veðrið var óvenju gott og 8 stiga hiti, en sáum lítið af fuglum, þó svartþrestirnir hafi mætt í garðinn okkar til að éta epli og brauðfylltan fituklumpinn sem ég bræddi handa þeim í gær. Dúfurnar mættu líka og fengu sinn skammt af korni, þó það hafi frekar verið ætlað handa smáfuglunum, en þeir létu ekki sjá sig...
Að lokum kíktum við í sandvíkina rétt hjá Stál, en þar voru þrjár hressar og hraustar konur að baða sig í sjónum og fannst þetta lítið mál, enda hitinn 8 stig sem er auðvitað mjög gott á þessum árstíma.... Ég hinsvegar mundi ekki reyna að fara í sjóinn nema klædd í sjógalla, en á auðvitað engan slíkan og læt því nægja að horfa á...